Friday, January 31, 2003

Nú er ég skelfdur

Þegar ég hlusta á rugglið úr forstjóra Landsvirkjunar að skýra út það að Landsvirkjun ætli ekkert að virkja þar sem hún ætlar að virkja og að Landsvirkjun hafi alltaf ætlað að gera það sem hún hefur örugglega aldrei ætlað að gera og sé jafnvel að gera, þá yrði ég líklega kærður fyrir meiðyrði ef ég myndi skrifa hér það sem ég vildi helst skrifa!!!

Jibbíí - Það er komið óveður


Og ég nýkominn úr glippingu alveg oggopinkunaustum alveg göllóttur. Samt ekki eins og hann Stebbi sem er bara alveg göllóttur en göllóttur samt. Mikið svakalakalega gæti manni orðið galt á hausnum. Verð líklega bara að fjárfesa í nýrri húfu. Húfu - já þarf þá að finna einhverja húfubúð. Fór seinast í sérhannaða húfubúð þegar ég varð stúdent og borgaði í fyrsta skipti með kredidkortinu mínu sem konan passaði sig á að brjóta ekki, en brotnaði samt en það var bara allt í lagi því það var einvhern tímann löngu seinna þegar ég var löngu kominn heim úr þessari útskriftarferð fyrir mörgum árum meðan ég var ennþá ungur en hélt að ég væri orðinn alveg svakalega gamall eða að minnsta kosti fullorðinn en það verður maður samt ekki fyrr en maður verður þrítugur eins og hún Stína sem yngdist síðan bara um heil sjö ár í morgun þannig að hún er bara orðin tuttuguogþriggja attur og fór þess vegna bara út í búið með henni Siggu í hádeginu sem er þá bara miklu eldri, örugglega orðin kona og allt en ekki bara stelpa eins og Stína sem yngist bara og verður orðin barn attur ettir nokkur ár og verður í 12 ára bekk með skrákunum sínum sem verða svakalega hissa á að mæta henni svona á miðir leið og
amen mikið svakalegt bull er þetta, verð líklega bara að fara að vinna eitthvað. Eftirmæli örugglega þegin.


held bara að þetta sé persónulegt met í bulli - Skyldu þeir hjá bull.com vita af þessu hvað lénið þeirra er mikið bull!

Thursday, January 30, 2003

Brandari dagsins er í boði Moggans


Þetta er Sknilld! Fólk er ótrúlegt!!!

Wednesday, January 29, 2003

Hellulagnir
Alver er það ótrúlega góð tilfinning að losna við helluna sem ég hef haft fyrir hægra eyranu í meira en viku. Verst að það varð til þess aðég uppgötvaði mér til undrunar að ég var eftir allt saman líka með hellu fyrir vinstra eyranu. Þessi aukna heyrn er alveg hreint ótrúleg. Ætli maður verði bara ekki hægrisinnaður af þessari nýfengnu hægri heyrn og fari kannski að berjast fyrir auknum virkjunaráformum. S.s. dásamlegri gufuaflsvirkjun á Laguaveginum. Myndi öruggelega draga að fullt af túrhestum. Síðan mætti fara í alveg svakalega fína siglingu á lóninu sem gæti myndast á Emstrunum eftir að stíflan þar hefur verið byggð. þaldénú. Síðan væri nú ekki amalegt að hafa þjóðgarð utanum þetta allt saman.
Er þetta í alvörunni fyndið
Alveg verð ég stundum ótrúlega glaður þegar ég kemst að því að einhver hefur sama húmor og ég fyrir bulli!

Tuesday, January 28, 2003

hundslappadrífa - jibbíííí

Monday, January 27, 2003

Kannski ekki svo góður punktur ...
Eitthvert athyglisverðasta sjónarmið sem ég hef heyrt lengi heyrði ég um daginn frá manni sem er búinn að vera atvinnulaus í nokkurn tíma. Það var víst enga vinnu að fá og þetta hafði víst ekki gengið baun í bala hjá honum. Og niðurstaðan var nú dálítið sérkennileg. Hann var sko eiginlega alveg búinn að sjá þetta út að þetta var nú bara út af því að atvinnuþátttaka á Íslandi er allt of mikil. Jú það getur náttúrlega vel verið að atvinnuþátttakan sé dálítið hraustleg hjá okkur mörlandanum en helst var þetta sko kvenþjóðinni að kenna taldi hann. Enda hafði hann komist að því að í öðrum löndum ynnu konur ekki nándarnærri eins mikið og hérna og það væri bara þannig í okkar guðsvolaða þjóðfélagi að það gætu bara ekkert allir verið að vinna, neyslan héldi því bara ekki uppi. Þannig að það til að tryggja að "allir" geti fengið vinnu þá verður augljóslega bara að draga aðeins úr atvinnuþátttöku kvenna.

Ég held annars að það sé konan hans sem vinnur fyrir honum núna í atvinnuleysinu.

Lifi dekkjaverkstæðin!