Tuesday, September 26, 2006

Það voru mótmæli í kvöld

Og ég og eikkurar þúsundir örkðuðu niður Laugaveg


demonstration
Var í för með HK og Ravnhild. Hittum Ralldiggn og Krisdján. Það var gaman og ég eyddi tveimur megabætum af minnisplássi
demonstration


Ég á kannske eftir að blogga aðeins meira um þessa göngu!

Monday, September 25, 2006

Björgunarsveitarsaga númer 1

Já það var farið í sína fyrstu æfingaferð

Mikið stuð og mikið gaman.

Eftir að hafa hent einhverju útivistarlegu dóti ofan í bakpoka kom HK næstumþví undanfari og gerði heildarúttekt á útbúnaðinum sem var tekinn með. Tvennt mjög mikilvægt vantaði. Fyrst kom í ljós að súkkulaðibirgðum var mjög áfátt og svo var ráðlagt að taka með spil þannig að ekki yrði drepist úr leiðindum!

Nú. Síkvens spili var hent oní bakpokann og komið við í súkkuklaðisjoppu á leiðinni upp á hið svokallaða M6.

Nú. Þar kom ég með HK sem var eins og áhyggjufull móðir að fylgja einkasyninum í sumarbúðir. Hún svona horfði rannsakandi yfir hópinn og sagði mér síðan að þetta yrði allt í lagi... ég myndi alveg ná að kynnast hinum krökkunum ég þyrfti bara að fara til þeirra og leika mér með þeim. Henni leist reyndar ekkert betur á þetta en svo að hún staldraði við í heilar 15 mínútur áður en ógnþrungin kveðjustundin rann upp og ég var alveg einn eftir með ókunnugum.

En svo varð þetta allt í lagi. Það var meira að segja einn þarna sem var næstum jafn gamall og ég og hét meira að segja sama nafni ég og þannig að þetta virtist allt verða að fara að verða frábært. Svo var farið af stað.

Við vorum í rútu og ég var aftastur. Sat við hliðina á tölvudóti aðal leiðbeinandans og stóð ég mig mjög vel í að passa allt dótið hans. Svo var ekið í myrkrinu lengi lengi, alveg þangað til við vorum komin í sumarbúðirnar.

Þar fann ég herbergi sem ég og hann nafni minn og Hlynur til fengum að sofa í. Svakalega fínt herbergi nema það vantaði alveg í það nothæfa ofna. Sem var náttúrlega svakalega fínt því við fengum aukreitis æfingu í að sofa í bylmingskulda [eða segir maður ekki bylmingskulda... ætli ég hafi verið að búa til nýtt orð?].

Æfingin snérist um að læra á kort og áttavita. Ekki slæmt fyrir mig að læra á slíka hluti. Kannski tekst mér að ná af mér stimplinum "Raggi rammvillti" eða "Einar áttavillti" ef ég gæti lært á þessi ósköp. Það var lært um misvísun og stefnumið, gráður og alls kyns. Hápunktur lærdómsins var þríliðuútreikningur til staðsetningar á ósýnilegu Atlaskorti. En það var stuð.

Svo var farið út að labba í myrkrinu. Við vorum þrjú saman og paufuðumst áfram. Stefnur voru teknar og svo gengið eftir göngustígum. Annars gekk þetta vel og alveg einstaklega vel Þegar við komum að skurði númer 1 og Dórinn í hópnum stökk út í... skvamp - þetta var djúpt. Við Arna vesöl á bakkanum vorum bara aumingjar sem vildu ekki fá hor og Dórinn bara svamlaði þá til baka enda mátti hann ekki týna okkur. Slíkt má ekki á svona æfingu. Svo fundum við annan skurð áður en við komum að eyðibýlinu þar sem verið var að spila miðnæturmessu í úbarpinu.

En þetta var sem smjatt ágætur allt saman! Kannski verst að það var engin myndavél meðferðis og því ekkert til að sýna frá ferðinni.

Sunday, September 24, 2006

það gerist um helgar

Um síðustu helgi:

Þá var farið í hinar árvissu göngur á Snæfellsnes. Ég ætla ekkert að segjha til um hvernig til tókst en ég hálfpartinn strengdi þess heit að fara aldrei aftur á minni æfi í göngur. En það komu svon sem nokkrar kindur niður þó nokkrar hafi orðið eftir þarna uppi einhvers staðar og jú, ég var nokkuð fljótur að draga eiðstafinn aftur!

En um þessa helgi sem er að kláras:

Þá var farið að dúddast á æfingu með björgunarsveit.

Þetta var rosa gaman allt. HK fylgdi mér og svona hálfpartinn skildi mig eftir eins og ég væri 10 ára strákur að fara í sumarbúðir og þetta voru auðvitað bbara svona sumarbúðir á Úlflótsvatni. Nýliða hópurinn er alveg hreint ágætur.



....

Tuesday, September 12, 2006

Núna ætlar minn kannski að verða dúddi !

... svona björgunarsveitardúddi sko!

Á gamals aldri dreif ég mig á fund fyrir nýliða í björgunarsveit. Ekki örgrannt um að ég gæti hugsanlega lært eitthvað þar inni. Kemur í ljós en ég þarf líklegast að ákveða mig innan viku eða svo!


....

Monday, September 11, 2006

rollumennska

Það var farið í göngur...


the talking sheep
Og þessi var þar

Það var farið í göngur norður í Öxarfjörð um helgina. Mart að gera og margar rollur þar. Kollóttar sumar en flestar vel hyrndar. Það var gaman.

Núna er maður aftur kominn til hennar Reykjavíkur og rollur bara hafðar undir tönn... en svo kemur aftur helgi og þá verður herjarð á kvikfénað á Snæfellsnesi eins og öll undanfarin ár. Það verður líka gaman!