Tuesday, June 19, 2007

Geisp

Það var flutningur í dag - Ralldiggn og Kristjánur að flytja

Mart að gerast. Ég orðinn allt of seinn og eitthvað önugur að sækja Gúnnann sem var óbílandi. Við eitthvað allt of seinir en skipti ekki máli því:

1: Ragnhildur tók á móti okkur með frönsk kartöflustrá í dós, súkkulaði í glasi og bros á vör...
Ralldignul bringin us some potatoe sticks and chokolate I guess

2: Dyggur bílstjóri vor kom ennþá seinna en við og fær þakkir skyldar fyrir að hafa verið framúr hófi óstundvís...
Dyggur

Svo hófst flutningabardaginn mikli. Þetta gekk allt framúr hófi vel fyrir sig þar sem kassarnir voru flestir fullir af lofti og þægilegra að bera þrjá kassa en tvo!
the movement

Og svo var allt afstaðið og Ralldign og Kristjánur bara nokkuð kát með allt draslið komið í bílskúrinn...
The new garage

Og ekki leiðinlegt að mér tókst strax að vingast við íbúa hverfisins þar sem fremstur í flokki fór fagurlitaður köttur mjálmandi og malandi brosandi til mín!
My new friend in my sisters neighbourhood

Já, Ralldiggn tók þessa mynd sem ég held að sé bara snilld. Ekki síður en pizzaveislan sem var slegið upp á eftir í tómu íbúðinni... það var sko ekkert búið að afhenda neitt nema eins og helminginn af bílskúrnum í Fagrahjallanum en þetta er allt svaka flott og fínt!
The pizza party


Annars ég ég einn heima núna.
HK fór til Dene á landvarðanámskeið og verður í viku.
Svo sameinast ég henni og DK og við förum í heimsóknarferð yfir tiul Sverge...
Munum þar skoða Lundur og það verður örugglega gamanur!

Á meðan hef ég bara þessa sautjándajúnímynd af henni...
hk smile today

No comments: