Wednesday, January 18, 2006

Mitt heilsusamlega líferni í súkkulaði sósu

Mitt líferni var dregið inn á heilsusviðið í dag. HK sættir sig ekki lengur við að skrokkur minn þurfi að innbyrða bras úr smiðju Tobba á hverjum degi og var því haldið á lífræn mið í hádeginu.

Það er sem ég segi "Maður lifandi" að þar komst ég loksins í kynni við himnaríki. Upp á var nefnilega bjótt kjúkling í súkkulaðisósu. Ég segi og skrifa KJÚKLING Í SÚKKULAÐISÓSU!!!

Við höfðum nú reyndar vit á að panta sitt hvort þannig að það var ekki bara súkkulaði kjúlli í matinn. Enda kannski eins gott eða kannski var það einmitt það ráðabrugg sem rústaði þessu. En í öllu falli. Ekki aftur kjúlla í súkkulaði fyrir mig!

Annars var þetta ágætt eða rúmlega að og bara gaman að hleypa svona aðeins heimdraganum í hádeginu.


....

No comments: