Hjólatúr, kosningar, fuglamyndir og fyrirhugaðar framkvæmdir

Ég er ekki neitt sérlega ánægður með hnéð á mér og ekki heldur neitt sérlega ánægður með Rauðu-Eldinguna. Hnéð varð aumt og svo slitnaði teinn og gjörðin skekktist. En það var hjólað.
Eitthvað yfir 77 km á alls 4 klst en meðalhraði 23 komma eitthvað á meðan ég var að hjóla. Ekki hratt en sæmilega langt samt á minn mælikvarða.Þarf að prófa hnéhlíf til að hnéð fari ekki svona í klessu. Svo þarf ég að henda hjólinu í þá hjá Erninum. Það er væntanlega ekki í lagi að það slitni teinn á sléttum vegi á nýju hjóli!
En jæja...
Það var kosið í gær. Ég ákvað mig ekki fyrr en á sekúndunni sem ég setti ex við eitthvað, segi ekki hvað en eftir á fattaði ég að ég hafði kosið í samræmi við sokkana mína!
En jæja aftur!
Fór í dag út á Seltjarnarnes. Þegar ég fór þar um á Rauðu-Eldingunni í gær sá ég einvern torkennilegan fugl.

Var þar komin margæs ef mér skátlast ekki þeim mun meira. Er bara nokkuð sáttur við myndatökuna. Held að myndin sé skárri en myndin sem er í fuglabókinni minni. Þarna voru líka flögrandi hettumáfar og er ég bara sáttur þar líka.

Og loks jæja...
Framkvæmdir. Það er komið á dagskrá að gera einhvern skjólgarð í garðinum hér á H34 þannig að ég geti sólað mig með einhverjum árangri núna í sumar.
Svo er ég líka pínulítið ánægður með sjálfan mig að þessar framkvæmdapælingar sem kölluðu áörlitla tiltekt í garðinum urðu líka til þess að í fyrsta skipti á æfinni er ég farinn að flokka eitthvað lífrænt rusl frá öðru rusli og ætla mér að búa til MOLD!