Tuesday, August 05, 2008

Framkvæmdagleði og þráðlausa netið kom á óvart

I made this!

Ég er búinn að pirra mig oft og mikið á því hvernig garðurinn kringum húsið sem ég bý í hefur hægt og rólega verið að verða einka eign konunnar á neðri hæðinni og feita hundsins hennar... en ekki lengur!

Fyrir svona ári síðan tók HK sig til eftir að hafa vorkennt hundskömminni svo mikið að geta ekkert hreyft sig að hún dreif í að koma upp grindverki í kringum garðinn þannig að hundurinn gæti verið þar óhindraður. Hún hafði einhvern óljósan grun um að þetta yrði til þess að hundurinn myndi gelta eitthvað minna. Ég veit ekki hvort hann geltir minna en ég veit fyrir víst að hann skítur meira út um allan garð. Hægt og rólega hefur garðurinn orðið þannig að þangað kemur maður ekki nema þá þegar maður þarf að slá garðinn og þá einhvern veginn eins og maður sé vinnumaður hjá konunni á neðri hæðinni og feita hundinum.

Einhvern veginn var mín hugmynd samt allaf sú að þegar maður á heima í húsi þar sem er garður þá á maður að geta notað og gert eitthvað við garðinn sinn. Og núna gæti það færst til þess betri vegar eftir að maður tók sig saman í andlitinu og klambraði saman borði og bekk. Svo sem ekki eins og maður hafi ekki gert svona áður en núna var það gert með stæl. Versluð vélsög og alls kyns grægjur til að koma herlegheitunum saman. Enda gekk það vel.

Svo loksins einhvern tíman seint um kvöld var verkið tilbúið og þá var bara að vígja það með að fá sér sæti og einn kaldan með. Svo datt mér snilldin í hug og hún gekk eftir. Núna sit ég hér í vellystingum praktulega og hlusta á Sigurrós í Ipod og Ipal og hamra lykla borðið beint á netinu úti í garði.

Jammsthul það held ég nú!

No comments: