Það var farið á fimmvörðuháls um helgina
Hópmyndin sem ljósmyndarinn ókunni tók af okkur
The photo from the unknown photographer who was rather shy and I had to crop the photo a little bitSólin skein við hvern sinn fingur og það gerðum við líka sem gerir 140 fingur auk sólarfingranna sem ég veit ekkert um hversu margir eru en eflaust fleiri en tveir.
Við vorum því í góðum félagsskap þar sem við örkuðum af stað upp járnstigana sem komnir eru við Skógarfoss. Fyrirskipanir voru einfaldar. Hægt, hægara hægast. Anna Huld og Hjálmar líklega í broddi fylkingar að reyna að ráða við sig og gerðu það bara dægilega vel. Það komust sem sagt allir upp án þess að gera út af við sig.
| Walking the Fimmvörðuháls, the mountain of five milestones. With friends from work and more people. We started 14 people at Skógarfoss.
|
Hvert moldarbarðið rekur annað á leiðinni upp á hálsinn
Once we had green country but it have been eaten!Það var svo ekki ónýtt að horfa yfir á Eyjafjallajökul. Þar voru Pá og Rós að þvælast með útivistarliði til skrifelsis á meðan við Skýrrarar pjökkuðum okkur upp með Skógaánni. Gott veður þennan dag á öllum kollum. Alveg Edilons myndi einhver stagt hafa einhvern tíman.
| We had this beautiful view over to the glacier Eyjafallajökull. I have been there twice but friends of mine were there on this same day now.
|
Það er þessi skáli. Svona hlutlaust nafn er "Neðri skáli" til spari er hann kallaður Baldvinsskáli en allir sem ég þekki kalla hann FúkkaBaldvinsskáli is the name of the hut but most people call it "Fúkki" and is because of the wet bad smelling air inside the hutFúkkinn lætur enn þá á sjá meira og meira. Gólffjalirnar virðast vera að þenjast út þannig að þær sperrast upp í loftið og myglan blasir við hvar vetna. Það er samt svo undarlegt að þegar maður kemur í slagveðursrigningu þá er hann hið ágætasta húsaskjól en þegar veðrið er svona meira edilons þá dettur engum í hug að fara þangað inn nema til að kanna aðstæður frekar skeptískur á hvort það sé yfir höfuð vogandi að fara þangað inn.
En mér sýndist að það væri búið að gera einhvern nýjan kamar með Ferðafélagsmerki
Gæðum jarðar virtist annars eitthvað vera misskipt þarna við Fúkkann. Við HK vorum eitthvað duglegri að drekka af vökvabirgðum okkar en að sækja þær í ána og bera með okkur. Vorum því orðin hálf vatnslítil. Aðrir áttu hins vegar þvílíkar alsgængtir að þeir opnuðu kaffihús úti undir vegg og áttu vatn í uppvask og hvaðeina. Svo þegar einvher ætlaði að hella teinu sínu þá var það hingað og ekki lengra og við fenguð einhvern drukk. Annars skondið að við vorum líklega þau einu sem voru í einhverju vatnshallæri en áttum líkleg að heita með svona að jafnaði mestu reynsluna.
| The hut is worse every year I come there. In good weather no one wants to go inside but in bad weather it is well appreciated shelter.
The coffe club was outside. I sometimes understand I have had some misunderstanding what those hiking tours are about when people bring equiopment to make cappucino coffee with stirred milk and everything. I actually missed it because I was in a rescue team for lost sunglasses but I could tell that coffee was just great!
|
Ég veit ekki alveg hvað nennan er mikil að skrifa endalaust og það á tveimur tungum. Verður nú skemmri skírn og hálsinn kláraður á einni tunugu þeirr sem tamari er. Bar reyndar helst til tíðinda hér að rétt áður en á há hálsinn kom var lækur drekkanlegur vel sem kom sér bara vel.
En svo var það skemmtilegast að eitt loforð var uppfyllt. En það var að veifa vinnufélaganum sem var forfallaður í Rússalandi að klílfa Elbrus. Tókum við okkur þrjú til á meðan HK festi atburðinn í núll og einn.
Á Hálsinum var síðan áfram auðvitað hið ágætasta veður. Var gengið áfram og niður Bröttufönn, um gatið fóru sumir á Heljarkambi á meðan aðrir héngu í keðjunum. Allir sluppu með skrekkinn og svo fóru sumir út á Heiðarhorn á Morinsheiðinni.
Og svo var farið um Kattarhryggi á meðan sólin bara hló að okkur!
Meiri myndir á
Flickr....
No comments:
Post a Comment