Skíðaskórnir höfðu verið að gefa sig lengi eftir að hafa fengið táviðgerð einhvern tímann líklega fyrir allt slas. Svo hafði ég séð við einhverja skoðun á skíðunum fyrir líklega Landmannalaugaferðina að þau voru orðin vel slitin og en verra að stálkanturinn var farinn í sundur á einum stað og svo var annað skíðið orðið klofið að aftan. það var því komið að endurnýjun. Eftir að hafa fengið nýtt par af Fischer E99 riffluskíðum í afmælisgjöf - þá var farið á stúfana með að kaupa skó eftir að þeir gömlu gáfust endanlega upp í fannferginu sem kom eina helgina í lok febrúar.Við Lyklafell í góðum eins manns túr í góðu veðri, 19. mars. Hælsærið að byrja að myndast líklega.
Eftir einhverjar hellingspælingar var ég kominn með rauða Alpina skó í stærð 45 fyrir NNN bindingu af því að mig langaði til að prófa þá bindingu og það var ekki til nr 44 í þeim skóm - hélt að 45 væri allt í lagi. Við prufutúr eftir 100metra skíðalabb sá ég að þetta var ómögulegt. Skilaði skónum og eftir enn meiri pælingar var ég kominn með Alfa skó nr 44 verslaða fyrir slikk í Noregi af Gunnanum sem var alveg óvart þar að vatnamæla.Í Elliðaárdal - 51cm jafnfall skv. Veðurstofunni en 55cm í Hæðargarðinum mælt af mér
Þeir pössuðu eitthvað og virkuðu fínt fyrir utan að þeir hafa reynst hinar verstu hælsærisbomsur. Sköpuðust eitthvað undarlegar umræður um það á Fésbók þar sem ég hafði velt því upp hvar væri hægt að versla skíðaskó.Skórnir
Tröll hraunar á Fésbók
Veit ekki hvort ég sé bara of viðkvæmur en mér leiðist svo svona umræða að ég endaði á að hætta að fá fram það sem umræddur Árni skrifar á fésbókina.
Síðan líka skondið að einhvers staðar fær maður einhver komment um að maður sé núna kominn á góð skíði - og ráðleggingar um að þetta séu svo og svo góð skíði. Eða ráðleggingar um hvernig á að velja skíðin. Eitthvað frekar undarlegt þegar maður er búinn að vera á þessu sama dóti í meira en tvo áratugi. Það er kannski frekar spurning um að fara að prófa eitthvað annað!
En er búinn að fara margar skíðaferðirnar á skónum og hef oftast komið heim með eitthvað blöðrótta hæla. Veit ekki almennilega hvað skuli til bragðs taka því þetta hér er síðan á dagskrá þegar kemur fram í júní!
Stórskemmtileg og stórgóð ferðasaga Watts yfir Vatnajökul lesin en í fótspor hans stendur til að fara þegar kemur fram í húní.
No comments:
Post a Comment