Monday, December 16, 2019
Móskarðahnúkar eða Móskarðshnúkar
Ég sjálfur ólst upp við að þeir hétu Móskarðshnúkar en var fyrir líklega rúmum 10 árum síðan bent á að þeir hétu Móskarðahnúkar því á milli þeirra væru Móskörð en ekki eitt Móskarð. Miðað við það væri réttara að þeir hétu Móskarðahnúkar, þ.e. fleirtölumynd skarðanna væri notuð í nafni hnúkanna.
En ef ég skoða hvað er upprunalegra er ein leið að skoða hvað hefur verið skrifað í íslensk dagblöð og tímarit í gegnum tíðina. Þá á eintölumyndin (Móskarðshnúkar) vinninginn og það er yfirburðasigur. Móskarðshnúkar koma fram í íslenskum prentmiðum á timarit.is alls 191 sinni. Elsta dæmið er frá þarsíðustu öld eða 1899 í Andvara og Tímariti Hins íslenzka bókmenntafélags.
Skráð dæmi um Móskarðahnúka eru eingöngu 9 talsins og bara eitt frá því fyrir síðustu aldamót sem er auglýsing Útivistar um gönguferð þangað árið 1985. Þar er hins vegar um tölvuvillu í skönnun að ræða og það er greinilega verið að nota orðið í eintölu. Það eru því engin dæmi til um Móskarðahnúka nema eftir árið 2000.
Ef skoðað er hvort það er talað um Móskarð eða Móskörð þá snýst dæmið hins vegar við því ekki virðist vera talað um Móskarð í eintölu utan einu sinni - í Þjóðólfi árið 1876. Einhver nokkur dæmi eru um að tala um Móskörð hins vegar í fleirtölu.
Þetta er til gamans gert og ég ætla ekki að taka endanlega afstöðu. Væntanlega er rökréttara að tala um Móskarðahnúka en þeir hafa samt verið kallaðir a.m.k. á prenti Móskarðshnúkar síðustu 120 árin eða svo.
Svo sé ég að Landmælingar hafa tekið afstöðu því á vef https://ornefnasja.lmi.is/ er ekki að finna Móskarðshnúka heldur eingöngu Móskarðahnúka.
Wednesday, February 04, 2015
Brotinn fótur
Það gerðist á laugardegi 24. janúar 2015 rétt upp úr hádegi
Gera slysin boð á undan sér? Stundum en ekki alltaf. Þetta slys gerði lítil boð á undan sér. Var í frekar auðveldri göngu á Lambafell í Þrengslum og eiginlega kominn niður af fjallinu þegar snjóhengja gaf sig eða hægri fóturinn og jafnvel ég allur var allt í einu í frjálsu falli, fótur kom niður ofan í holu eða festist af einhverjum ástæðum. Fann að það gaf sig eitthvað inni í fætinum, eitthvað sem ég vissi ekki að gæti gerst á svo auðveldan hátt og ég lá óvígur eftir.Það var dálítið fum á fólkinu fyrst í kringum mig. Kannski ekki alveg gert ráð fyrir því að einn af leiðsögumönnunum færi að slasa sig. En hér kom í ljós að allt getur gerst. Tókst að komast í talstöðina og kalla til bræður Örvar og Ævar sem komu fljótt. Dálítið kraðak var á tíma í kringum mig en annars gengu björgunaragerðir rosalega vel. Það var hlúð að mér, sett eitthvað dót undir mig og mér troðið í úlpu líklega af öðrum hvorum bræðranna. Slysið var tilkynnt á 112 og óskað eftir flutningi. Það var eitthvað minnst á að þyrla væri í athugun en ekkert í hendi með það. Það voru einhverjir læknismenntaðir með í för og ég held að eitthvað sem þeir sögðu um 90°rótasjón á fætinum hafi haft úrslitaþýðingu með að þyrluflutningur var skoðaður af alvöru.
Eftir einhverar spekúlasjónir um spelkun eða ekki spelkun var niðurstaðan að hafa mig í skónum og spelka hann ekki en hins vegar settur stuðningur með fætinum til að hann lægi ekki alveg út á hlið. Bræður Örvar og Ævar ásamt læknum sem voru með voru búnir að sjá aðeins hvar fóturinn var brotinn. Ég var alveg sæmilega bjartsýnn þar sem brotið var bara einhvers staðar á sköflunginum en ökklinn ætti þá ekki að vera í svo mikilli hættu. Annað átti eftir að koma í ljós :-(
Það var eiginlega mitt lán að nokkrir undanfarar höfðu verið að æfa sig með þyrlu á Sandskeiði og æfingin þeirra búin rétt mátulega og komu og sóttu mig. Voru eitthvað úr Garðabæjarsveitinni og Hafnarfjarðar skildist mér og svo var þar Maggi Blöndal, mér til mikillar ánægu. Hann var auðvitað með myndavélina sína og tók nokkrar myndir. Sótti þessa hér að neðan á FB sem hann setti inn á lokaða hjálparsveitarsíðuna.
Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli þannig að ég fékk líka far með sjúkrabíl. Greinilega ekki lent beint við spítalann nema hraði skipti öllu máli. Það var svo sem ekki raunin hjá mér en ég verð að segja að mikið ofboðslega var ég þakklátur fyrir að fá þyrluna til að flytja mig. Annars hefði þurft að koma á breyttum jeppa yfir óslétt Kristnitökuhraunið við Lambafellið. Bæði hefði ég þurft að bíða mikið lengur eftir flutningnum og eins þá hefði flutningurinn tekið mun lengri tíma og verið sínu óþægilegri. Þyrlan var afar fljót að komast á sinn leiðarenda.
Á slysamóttöku Borgarspítalans tókst að koma mér úr skóm og buxum og þá var hægt að senda mig í röntgen með fótinn rammskakkann og röntgenmyndin sýndi nokkuð greinilegt fótbrot. Ég hafði annars sagt við fólkið á slysó að áður en ég fór í myndatökuna að kannski væri ég ekkert brotinn. Það var bara hlegið að þeim ágæta brandara - enda datt mér ekki í hug annað en að fóturinn væri brotinn. Neðri hluti sköflungs reyndist vera mölbrotinn og að sem verst var að neðst var hann brotinn ofan í ökklaliðinn þannig að hann var sem sagt illa laskaður. Sprunga hélt þar áfram ofan í ökklann en var ekki brotið. Svo brotinn líka sperrileggur ofarlega.
Bræður Örvar og Ævar komu til mín, fengu allar fréttir. Komu með dót og tóku dót sem ég hafði verið með og aðrir höfðu látið mig fá. Búið að láta Pál framkvæmdastjóra FÍ vita þá strax held ég og hann myndi sjá um slysatryggingarpartinn.
Ég var settur á bæklunardeild B5, Gunni kom til mín með tölvu og eitthvað annað dót. Það var búið að segja mér að ég yrði jafnvel fram á miðvikudag á spítalanum. Vissi ekki alveg af hverju en átti svo sem eftir að komast að því hvernig myndi standa á því. Komst í aðgerð einhvern tímann um klukkan 9 um kvöldið. Aðgerðin tók eitthvað vel á annan tíma og þegar ég vaknaði á skurðarborðinu eftir aðgerðina var mig bara að dreyma eitthvað í rólegheitunum. Þreifaði eftir fætinum og varð dálítið hissa á að gipsið næði ekki upp á nára því það var búið að hræða mig með því að það væri nauðsynlegt út af efra brotinu á sperrileggnum. Það var víst ekki nein þörf á að gera nokkurn skapaðan hlut með efri hluta sperrileggs og raunar bein sem ku mega bara nota í viðgerðir á öðrum beinum! Eitthvað heyrði ég sagt um að ég hefði verið mikið brotinn en síðan ekkert meira því ég var settur inn á gjörgæslu þar sem ég fékk að vakna í rólegheitum. Ekki af því að ég væri í sérstakri lífshættu heldur bara út af því að ég var að vakna úr svæfingu. Sérkennilegt að liggja þar innan um fárveikt fólk og finna að blóðþrýstingur var tekinn reglubundið á svona korters fresti sjálfvirkt. Svo var mér ekið til baka á bæklunardeild B5. Hringi í Gunnann sem hafði farið heim áður en aðgerðin hófst til að tilkynna að ég væri lífs.
Á sunnudagsmorgninum kom skurðlæknirinn Ríkharður Sigfússon til mín og jú sagði að þetta hefði verið mikið brotið en nú ekki mikinn áhuga á að spjalla mikið en vildi helst að ég færi af spítalanum sem fyrst þar sem veikara fólk þyrfti að komast að. Eða það voru í öllu falli skilaboðin sem ég meðtók. Mér tokst nú samt að teygja lopann fram á þriðjudaginn þegar skipt var um umbúðir á fætinum. Var þá orðinn alveg sæmilegur af verkjum í fætinum og farinn að geta hreyft mig sjálfan án þess að finna mikið til.
Hægt og rólega þarna á spítalanum áttaði ég mig á því að fóturinn hafði verið mölbrotinn og það sem var verst er brotið neðst í sköflungi sem náði niður í ökklaliðinn. Það var fest saman með stöku skrúfunni. Læknirinn sem var með til aðstoðar í aðgerðinni sagði mér í umbúðasiptinum hins vegar að mjög vel hefði tekist til varðandi þetta í aðgerðinni. Svo var sprunga ofan í ökklaliðinn.
Það var svo á þriðjudegi að skipt var um umbúðir á fætinum og upp úr hádeginu fór ég heim. Það var mamman mín og Gunninn sem komu mér heim. Gunninn búinn að heimsækja mig margoft en líka bræður Örvar og Ævar sem næstum því vöktuðu mig. Ragnhildur með sitt slekti kom líka alveg einu sinni ef ekki tvisvar. Kominn heim með tvö sett af hækjum. Þær löngu sem ég keypti sjálfur og svo mannbroddahlkjurnar frá Önnu Maríu.
Saturday, October 04, 2014
Fyrsta skipti í marga mánuði - first time for several months
Ætlunin að ganga á hana TrönuAllt í einu er eiginlega bara kominn vetur. Það snjóðai örlítið í henni Reykjavík í gærkvöldi. Reyndar enginn snjór í morgun en smá krap einhvers staðar sem náði ekki að vera slabb. En það var farið í smá fjallgöngu. Það telst reyndar líklega fjallganga þegar ég fór áleiðis á Hlöuðufell í sumar til segulmælinga en var núna í hlutverki gædsins. Og jú annars, það var líka gengið yfir Rauðufossafjöll og Háöldu á Fjallabaki með allt á bakinu - það verður víst að fást að teljast með. En dálítið einkennilegur gæd í dag að hann þurfti hérumbil stuðning til að komast upp á einfalda göngubrú.Það sem ég annars hafði mestar áhyggjur af var að detta og skemma öxlina mína aftur, meira eða enn frekar. Var dálítið kvíðinn því það var útlit fyrir talsverða hálku á göngunni. Ég ekki með neina hálkubrodda heldur bara alvörubroddana sem er ekki gott að nota nema það séu alvöru broddaaðstæður. Hefði þurft þá í eitthvað öðrum aðstæðum en þetta slapp til þar sem það var ofankoma allann tímann sem var gengið og því ekki um neina alvöru hálku að ræða. | Hiking guide with Ferðafélag ÍslandsSuddenly the winter had arrived - we call it sometimes Winter, the king - "vetur konungur". Hikng to day as a guide for first time since my first injury at Eyjafjallajökull in June. I Have not been so much to mountains since then and nothing to speak of since the accident in end of July. So it was nice to be back as a guide although I was not able to do everything I used to do as a guide. Was not able to help the people in diffucult conditions - but I was at least present.I was mot worried of falling on my bad arm because of slippery conditions. But luckily we just had bat weather with wet snow all the time - weather not leading to slippery condition. So I did not fell nor did any of the passengers fell down or anything. |
The group were we turned back
Sunday, June 22, 2014
Slappur tappi
Upp og niður á Eyjafjallajökli um sumarsólstöður 2014. Bara brattur á leiðinni upp fyrstu brekkuna en svo skömmu seinna frekar súr á leið niður aftur einsamall með sinadrátt eða slit í vöðva. Vonast samt það besta. Daginn eftir talsvert að skána!
-----
Var upphaflega á FB síðunni minni en fært hingað með dagsetningu skráningar þar.
Monday, January 13, 2014
Fyrsta færsla á nýju ári eftir fyrstu göngu ársins með Ferðafélagi Íslands
Gengið áleiðis í Búrfellsgjá
Kannski ágætt að fyrsta færsla þessa ársins verði um það þegar gengið var í Búrfellsgjá og á Búrfell með einu léttu fjalli Feðrafélags Íslands. Ftrsti göntutúrinn þetta árið og lofar aö mörgu leyti góðu þó það séu reyndar einhver óveðrsský einhvers staðar. Helst er það út af breytingunni sem var gerð og því að núna þurfum við gædar að fara að velja og hafna hvaða fjöll við förum á. Á sama tíma og Ferðafélagið er búið að setja takmörk 4 leiðsögumenn á hverja ferð þá ákváðu þeir bræður að bæta einum leiðsögumanni við þannig að núna erum við 7 talsins að bítast um það hver fer hvaða ferð. Líst einhvern veginn ekkert allt of vel á það hvernig þetta þróast en er á meðan er og á meðan það verða ekki einhver leiðindi þá er ég með.
Það er annars eitthvað fólk sem ég þekki þarna núna að ganga. Stefán Andrésson áfangastjóri er þarna og ekkert vont að endurnýja kynnin við þann mann sem gleymiir aldrei neinu! En síðan ekki síðra að Haraldur jarðfræðingur Gunnarsson ætlar að ganga þarna líka. Það verður verulega gaman að velta jarðfræðinni fyrir sér með honum! Væri meira en til í að fara einhverjar þá af þeim ferðum kauplaust!
Svo bar kannski til tíðinda að við mættum öðrum hópi FÍ þarna á leiðinni sem framhaldslíf kallast. Þær fór fyrir einhver mikill belgingur sem ég þekki ekki sérstök deili á en æði fannst mér hann stjórnsamur og ekki skemmtilegur. Ætli við sem erum í mínum hópi virkum líka svona á t.d. þátttakendurna sem eru að ganga í okkar hópum. Ég vona ekki. Við vorum í öllu falli ekki jafn bransaleg og hann var. Hann var svona útbúinn eins og hann væri að fara í sprungubjörgun!
En það var tekin hópmynd sem hann stóð fyrir en vildi samt hafa hálf ómögulega - því enginn mátti stjórna neinu nema hann sjálfur. Skemmtielgra hefði verið ef fólkið hefði komið nær en við það mátti ekki koma!
Hópmydnin af Einu fjalli mánaðar ásamt framhaldslífi 52gja fjalla mætast í Búrfellsgjá
Tuesday, December 10, 2013
Að gera eitthvað skemmtilegt
Allir aðal gæslarnir í kirkjunni við Mosfell: Örvar, Ólafía, Ævar, Pétur, Sigrún og maður sjálfur með stóru húfuna.
Það eru líklega rétt að verða þrjú ár síðan mín þáverandi Anna María uppástóð það að Ferðafélaga Íslands væri að fara af stað með einhverjar ofboðs sniðugar gönguferðir, eitt fjall í mánuði. Hún vildi og þá vildi ég líka en samt kannski ekki alveg fara að borga mig inn í eitthvað svona prógramm og hringdi þess vegna bara í Pál Ásgeir og spurði hvort það vantaði ekki einhvern í hópinn til að gæda. Jú, það reyndist auðsótt mál. Anna María komst reyndar aldrei með áður en því sambandi lauk en ég geng enn einu sinni í mánuði með þessum frábæru félögum og öllum hinum sem eru með í ferðunum! En núna er best að halda áfram að læra fyrir þetta skrambans haffræðipróf!Thursday, March 07, 2013
Hvernig væri að blogga smá
Nýtt gólf í Músahúsi
Af músum í Músahúsi er það hins vegar að frétta að þær láta húsið standa undir nafni. Núna var ein feit og pattaraleg dauð og önnur meira og minna étin og dauð og sú þriðja líklega löngu étin. Sú feita var frekar nýleg og því ekkert farin að lykta að ráði en verra var með þá sem fannst ofan í einhverjum taupoka þegar við vorum að fara að fara. Hún var líklega frá því í nóvember. Hafði komist í kaffi og var steindauð og frekar mjög illa lyktandi. Það þurfti að henda einhverjum tuskum en aðrar teknar heim til suðuþvotta. Ojbarsta!
Lauf að springa út í fyrstu viku marsmánaðar!
Veit annars ekki hvað ég á annað að blogga. jú þarna austur frá var hérumbil komið sumar eins og sést á myndinni að ofan. Það reyndist þó vera óttalegt frumhlaup því núna í vikunni er bæði búið að vera hörkufrost og hríðarveður. Stórt björgunarsveitarútkall í gær þar sem allt var í einni stórri klessu í henni Reykjavík.Svo um daginn eða í febrúar var farið á Ingólfsfjall í einu fjalli mánaðar með Ferðafélaginu. Það var bara ágætt en dálítil drulla á leiðinni. Ég hélt svo þar líka jarðfræðipistil sem fór á fésbók. Varð einnig það frægur að pistillinn endaði í útvarpinu viku seinna í þættinum út um græna grundu.
Í þoku við Inghól uppi á Ingólfsfjalli
Thursday, January 31, 2013
Komið nýtt ár og heill mánuður svona hér um bil
Gönguhópur eins fjalls í mánuði fetar sig niður af Úlfarsfelli 26. janúar.
Ekki seinna vænna að blogga eitthvað smávegis. Er alltaf að þykjast svo allt of upptekinn að það bloggast ekki mikið. En samt. Einhverju er hægt að segja frá sem maður vill muna eða ekki muna.- Er ekki lengur að læra jarðfræði heldur jarðeðlisfræði á masterstigi og alls ekki viss um að það hafi verið nógu góð skipti. Var svona eiginlega búinn að gefast upp fyrir tveimur vikum en svo fór þetta eitthvað að koma. Held samt að það sé við það að fara aftur!
- Er að rembast við að læra einhverja rafsegulfræði sem er eitthvað allt annað en ég hafði ætlað mér. Skil eiginlega ekki hvernig ég komst í þetta vesen!
- Pápinn minn varð veikur og fór á spítala en er kominn á ágætan bataveg og væntanlegur heim aftur fljótlega.
- Sé veröldina loksins aftur alla með að hreyfa hausinn bara pínulítið með margskiptum gleraugum. Já, það á eflaust eftir að muna töluvert miklu að þurfa ekki að rífa af sér og setja á sig gleraugu aftur og aftur í sífellu. Mér sýnist að þau verði núna bara á nefinu á mér og allir glaðir með það. Er samt dálítið sjóveikur ennþá með þau enda bara búinn að vera með þau í rúman klukkutíma!
- Fjárhagurinn við það að rústast. Fjalladót um áramót fór illa með hann, bilun í Ventó var ekki til að bæta það og svo þessi gleraugu kostuðu sitt. Tvær útlandaferðir í vor á dagskrá þannig að þetta gæti endað með ósköpum. Það verður í öllu falli ekki neinum frekaru aurum eytt næstu mánðuðina nema í algjörri neyð!
- FÍ gönguferðirnar farnar af stað aftur eins og sjá má af halarófumyndinni í skafrenningsfjúki á Úlfarsfelli um síðustu helgi
- Er kominn með á dagskrá að fara í einhverjar fjallgöngur með vinnufélögunum hjá Staka
- Hef enn ekki farið á skíði í vetur en ætla helst að bæta úr því fljótlega!
- Er að reyna að prjóna peysu en þurfti að rekja helst til of mikið upp til að eygja von um að hún komi til með að passa eitthvað á mig.
Saturday, November 17, 2012
Jarðfræðikortagerð lokið í bili
Jarðfræðikortagerð in memorium. Holufylling úr Úlfarsfelli og Olavskuðungur af Tjörnesi liggja hlið við hlið á velktum sniðborða af Melabökkum ættuðum úr grein Óla Ingólfs úr Jökli og bjargað af Ívari og starfsmönnum jarðvísindastofnunar HÍ. Kuðungurinn líkela uppi svona milljón árum áður en setlagið myndaðist og holufyllyngin fór þá væntanlega að myndast eitthvað síðar - eða útfellingin þar sem þetta er nú eiginlega ekki nein almennileg holufylling - en var nú samt í holu sko!
Búinn að vera dálítið á haus í allt haust. Held ég sé eiginlega búinn að vera upptekinn síðan einhvern tíman í júlí! Er eiginlega búið að vera of mikið. Núna í síðustu viku var klárað risaverkefnið í jarðfræðikortagerð sem var farið að ganga nokkuð nærri geðheilsunni. Ekki alveg sáttur við allt í því verkefni svona eins og það að kennararnir sáust ekkert heilu og hálfu dagana heldur voru bara einhvers staðar annars staðar - kannski áttum við að segja þeim að koma en þeir sögðust víst yfirleitt ætla að koma en sáust frekar lítið - og máttu vart af hvor öðrum sjá. Reyndar var það bara þannig í Melasveitinni því það var ekki þannig í Tjörnesi eða Úlfarsfelli. En það er gott að það sé búið að skila þessu - veit bara ekkert hver niðurstaðan verður en er þokkalega sáttur við Úlfarsfellshlutann og hina svona eftir einhjverjum atvikum.Svo var farið í dag með Ferðafélagi á eitt fjall í mánuði. Það var Ármannsfell og það var hvasst og það var snúið við. Í fyrsta skipti sem þessi hópur þarf að snúa við en ég er nokkuð viss um að ákvörðunin var alveg hárrétt. Fólk var við það að fjúka og ekki hefði bætt úr skák að enda með alla örþreytta. það hefði bara getað endað illa.
Við Ævar líklega að reka lestina á niðurleiðinni rétt eftir að snúið hafði verið við. Ég hefði ekki viljða hafa allan hópinn örþreyttan í þessari brekku!
Tuesday, July 17, 2012
Hafnarfjall 7. júlí
Arkað upp eina af fyrstu brekkunum, upp á Tungukollinn
Ein ágæt ferð á Hafnarfjall með mánaðarfjallshópi FÍ. Lagt af stað í súld og sudda en stytti upp og glaðnaði aðeins til á köflum.
Gekk í það heila alveg ágætlega. Dálítið rólegt hjá sumum með slöpp hné og mikinn áhuga á blómskrúði. Örvar ágætur þegar hann sagði að í Hafnarfjalli væru landsins stærstu gabbró innskot. Held að það sé eitthvað takmarkað gabbró í Hafnarfjalli en hins vegar eru þar Flyðrur sem eru hugsanlega stærstu Granófýr innskot landsins. Í öllu falli ku vera þar Granófýrr
Svo líka skondið að þetta með gabbróið kom í þættinum "Út um græna grundu" en þá var Örvar Aðalsteinsson kynntur til leiks sem Ævar Örvarsson. Það er þá líklega bara meðaltalið af þeim bræðrum en Ævar var ekki með í ferðinni að þessu sinni.
Flyðrur væntanlega séðar ofan frá... en þó kannski bara ekki en þær eru í öllu falli einhvers staðar þarna í þessum hlíðum
Sunday, April 29, 2012
Að verða alveg ótrúlega blautur
og ég eignaðist persónulegan óvin í Sundlauginni í Mosfellsbæ
En veðrið maður, veðrið! Búin að vera blíða í marga daga og svo er spáð aftur blíðu held ég en í dag var ekki blíða. Þegar heilinn í mér ákvað að það væri kominn tími til að fara á fætur löngu áður en ég ætlaði sjálfur að fara á fætur þá heyrði ég bara riginignuna bylja á rúðunni. Það er bara svona hugsaði ég með þeim sama heila. Ákvað að reyna að sofa aðeins meira því ég hafði ekki farið neitt sérlega snemma að sofa kvöldið áður og aukinheldur hafði ratað heilt glas af rauðvíni ofan í mig einhvern tíman kvöldið áður.
En það var farið af stað og það varð blautt, blautara, blautast. Ég lafði nú reyndar þokkalega lengi þurr en það kom þó að því að allt varð blautt. Einhvern veginn alveg sama hvað gallinn er nýr eða gamall ég skal enda á því að blotna í gegn ef það er alvöru vatnsveður. Það var reyndar meinleysis rigning megnið af tímanum alveg þangað til sú ógleymanlega stund rann upp að Þorvaldur nokkur í þessum hópi hóf upp raust sína og söng veðrinu til dýrðar og óskaði eftir almennilegum þræsingi:
-
Ég vildi óska, það yrði nú regn
eða þá bylur á Kaldadal,
og ærlegur kaldsvali okkur í gegn
ofan úr háreistum jöklasal.
Loft við þurfum. Við þurfum bað,
að þvo burt dáðleysis mollukóf,
þurfum að koma á kaldan stað,
í karlmennsku vorri halda próf.
Þurfum á stað, þar sem stormur hvín
og steypiregn gerir hörund vott.
Þeir geta þá skolfið og skammast sín,
sem skjálfa vilja. Þeim er það gott.
Ef kaldur stormur um karlmann ber
og kinnar bítur og reynir fót,
þá finnur ’ann hitann í sjálfum sér
og sjálfs sín kraft til að standa mót.
Að kljúfa rjúkandi kalda gegn
það kætir hjartað í vöskum hal. –
Ég vildi það yrði nú ærlegt regn
og íslenskur stormur á Kaldadal.
Og honum varð að ósk sinni því skömmu síðar vorum við komin í hávaðarok ofan á alla úrkomuna!
Svo á eftir var farið í sundlaugina í Mosfellsbæ. Ekki þessa gömlu sem ég fór einhvern tíman með Önnu Maríu í, líklega eftir Esjugöngu sömuleiðis, heldur var núna farið í einhverja herjarinnar 2007 sundlaug byggð fyrir eitthvern bráðahagnað með von um enn meiri bráðahagnað sem brást auðvitað. Þar hitti ég fyrir einhverja fúla vog sem hélt því fram að ég væri að nálgast heil 100 kg. Skil ekki alveg hvernig ég á að hafa getað þyngst um heil 2-3 kg á örfáum dögum síðan ég steig á hana frú Halldóru í Laugardalslauginni.
En kannski verður maður bara að fara að gera eitthvað í sínum málum ef það á ekki að stefna í algjört óefni!
Saturday, March 24, 2012
Stóri- og Litli-Meitill með Ferðafélagi Íslands
Við gíginn á Stóra_Meitli / On the edge of the crater on top of Stóri-Meitill
| Það var farið á Meitla tvo í dag. Stóra- og Litla-Meitil. Gædaferð með Ferðafélaginu, eitt fjall í mánuði. Skemmtileg ferð í vörmu veðri en helvítis roki. | I was doing my monthly guiding work today. The project was to climb two small mountains close to Reykjavik, Stóri-Meitill and Litli-Meitill. The weather forecast was very warm or even hot according to the time of the year. But it became rather windy so the weather was not so extremely good. But at least it was not raining during the hike as it was in the evening in Reykjavik The number of people participating was between 120 and 130 so it was quite a group and we were 6 guiding the group – all guides where members of my rescue team, HSSR. |
Jarðfræði svæðisins / The geology of the area
Jarðfræðikort af svæðinu / Geology map of the area
(Kristjan Sæmundsson, Haukur Jóhennesson, Árni Hjartarson, Sigurður Garðar Kristinsson and Magnús Á. Sigurgeirsson, 2010. Jarðfræðikort af Suðvesturlandi, 1:100 0000. Íslenskar Orkurannsóknir)
| Stóri- og Litli-Meitill 24. mars 2012: Jarðfræðikort svæðisins. 1: Móberg frá lokum síðasta jökulskeiðs 2: Grágrýti ofan á móbergi 3: Eldra móberg frá fyrri hluta síðasta jökulskeiðs 4: Aðrir grágrýtisflákar 5: Hraun á bilinu 1900 til 2400 ára og þetta hraun er álitið vera 1900 ára gamalt og gengur undir ýmsum nöfnum 6: Nútímahraun, eldri en 2400 ára 7: Dyngjuhraun, eldra en 7000 ára 8: Dyngjuhraun, yngra en 7000 ára Samkvæmt þessu korti sem er nokkuð áreiðanlegt, þá eru Meitlarnir báðir frá seinni hluta síðasta jökulskeiðs og líklega frá lokum þess þegar jökullinn var farinn að þynnast verulega sem sést af því að grágrýtishraunin hafa náð að flæða þar yfir eldra móberg. Það móberg er frá sama ísaldarskeiði (þ.e. á bilinu 50-100 þúsund ára gamalt). | The geology of the area. The photo above is from a very good geology map published by ISOR couple of years ago. The numbers means: 1: Subglacial hyaloclastite from late Weichsel 2: Compound lava on hyaloclastite 3: Subglacial hyaloclastite from early Weichsel 4: Compound lava 5: Lavas, 1900 to 2400 years old. This particular lava is close to 1900 years old. 6: Holocene lavas, older than 2400 years 7: Lava shield, older than 7000 years 8: Lava shield (Holocene), older than 7000 years According to the map, both mountains (Stóri-Meitill and Litli-Meitill) are from late Weichsel and as far as I understand there was lava coming from the crater in Stóri-Meitill. I’m perhaps making some suggestions but I think the lava was flowing over older hyaloclastite ridge that had formed early in Weichsel. My wild guess is that the glacier was retreating at the same time. In the beginning of the eruption the glacier must have covered the area since the eruption end product became subglacial hyaloclastite. But since the lava flowing from the crater did not flow all the way down from the mountain but leave older hyaloclastite areas on lover places in the mountain I think most likely the glacier was still there in the lover part. |
The crater on top of Stóri_meitill. It is somewere written the size of it is approximately 300m x 500m - so ti must have been quite an eruption!
Saturday, February 25, 2012
Grímarsfell með Ferðafélagi Íslands
Það var aftur gengið á fjall í dag. Fór reyndar á Dýjadalshnúk Esjunnar á þriðjudaginn með HSSR liðum, aðallega nýliðum. En núna var farið á Grímarsfell með Ferðafélaginu hvar ég er að leiðsegja. Skemmtilegt verkefni og til að gleðja mitt geð þá fékk ég nýtt dót frá FÍ, forláta talstöð til að rabba í við hitt fólkið. Er sem sagt orðinn vörslumaður talstöðvar frá Ferðafélaginu.
Ferðin var fín, ennþá fleiri en á Helgafelli síðasta mánuði en alls taldist hópurinn núna vera 138 manns. Dágóður slatti þar á ferð!
Dálítið skondið að þetta er síðan eitt af þeim fjöllum sem ég veit ekki hvað eiga að heita. Ég kalla það yfirleitt Grímarsfell en á kortum stendur ýmist Grímansfell, Grímarsfell, Grimmannsfell, Grímannsfell,
En þar uppi er hins vegar Flatafell, Háihnúkur (eða stórhóll) og Hjálmur (Kollhóll). Er það von að leiðsögumanninum geti vafist tunga um tönn.
Myndír úr ferðinni er með smellingu að neðan:
Aðeins um jarðfræði Grímarsfells
Kortið að ofan fæst stórt ef smellt er á það. Er af Jarðfræðikorti Suðvesturlands, gefið út af Ísor 2010.
On the map you can see Grimarsfell, the mountain we were climbing. You can also see the black triangle line on the upper part of the map. That line is marking the edge of the caldera of Stardalur cerntral volcano. One could quite easily imagine the other edge of the caldera be very close to the mt. Grimarsfell. And also the yellow spot in Grimarsfell is Rhyolite rocks and is most likely originated from partial crystallization or melting in the central volcano… but at the moment, just my suggestion.
| Í ágætum jarðfræðipistli þeirra bræðra Örvars og Ævars kom fram að Grímarsfell sé tengt Stardalsmegineldstöðinni en miðað við jarðfræðikort Ísor að ofan þá sjást öskjubarmar þeirrar megineldstöðvar við Móskarðahnúka handan Mosfellsdalsins. Miðað við sveigjuna á öskjubarminum þá má ætla að Grímarsfellið hafi verið nálægt öskjubarminum hinum megin. Í hlíðum fjallsins eru hraunlög, merkt með grænum lit á kortinu og eru þau hraunlög eldri en efsti hluti fjallsins þar sem er móberg. Samkvæmt jarðfræðikortinu er móbergið eldra en 700 þúsund ára sem passar ef miðað er við að Stardalseldstöðin hafi verið virk fyrir 1-2 milljón árum síðan. Grímarsfellið er því í raun sambland af því að vera móbergsfjall og rofinn jarðlagastafli. Mosfellið sem er yngra er hins vegar móbergsfjall í heild sinni, ólíkt öðrum fjöllum á svæðinu. | Here is some information about the geology of Grimarsfell. First I must give some explanation in English, what this is all about. Above is an explanation of a hiking tour where I was one of the guides to a small mountain called Grimarsfell, close to Reykjavik. It is a part of a one year long project from The Icelandic travelling club, “Ferðafélag Íslands” were people climb one mountain each month. And now I will give you some geology information about that mountain. First, the mountain is related to the Stardalur central volcano and the mountain itself is a small volcano. The twins who are among other people guiding with me found somewhere the Stardalur central volcano was active one and two million years ago and from the geology map above one can see the volcanic tuff on the top of the mountain is older than 700ka (ka=thousands of years) that is from before the brunhes (paleomagnetism) epoch. But the lower part of the mountain is made of basaltic lavas but eroded by the ice age glaciers. I do not have exact information about when this area was covered by ice for the first time but Hvalfjordur, the next fjord that is very close was covered by ice more than two million years ago. So I would say this mountain is a combination of a hyaloclastite mountain and eroded basaltic lava stack. PS I’ writing this English both to be informative for people reading the blog but also for practicing my English – so feel free to comment about geology, use of English and everything! |
Tuesday, November 08, 2011
Æfintýri á gönguför
Sunday, August 28, 2011
Ljósufjöll um helgina
Eitt fjall á mánuði... kemur skapinu í lag... a.m.k. þann daginn sem gengið er og jafnvel daginn eftir
Hópurinn í hádegisstoppi og Ljósufjöll bíða á bakvið hin spökustu. Miðtindur lengst til hægri en Bleikur í miðju. Gráni svo lengst til hægri en þangað fórum við reyndar ekki... enda sá tindur lægri en hinir!
Hin allra skemmtilegasta ganga með félögum mínum leiðsögumönnum og góðum ferðalöngum Ferðafélags Íslands. Kannski sérstakt en þó ekki að við leiðsögumenn höfðum ekki gengið fjallið mikið. En það kom ekki að sök þar sem sumir höfðu kynnt sér jarðfræði svæðisins og svo voru ágætir þátttakendur sem kunnu skil á helstu þjóðsögum Snæfellsness og gátu varpað ljósi á hinar dularfullu Skyrtunnur sem eru þarna á víð og dreif. Við hins vegar fórum á Miðtind og Bleikan að auki.
Reyndar höfðu þrír af fimm fararstjórunum þá sérstöku reynslu að hafa farið upp og áleiðis í gegnum Ljósufjöll að sunnanverðu þegar flugslysið varð þar fyrir áratugum.
Síðustu metrarnir upp á Miðtind
Saturday, July 23, 2011
Tröllakirkja með FÍ
Tröllakirkja séð frá þjóðveginum. Það er farið upp skarðið vinstra megin og síðan sveigt til hægri upp á hæsta tindinn sem er þessi í miðjunni.
Það bar til tíðinda að lati leiðsögumaðurinn mætti í mánaðarlega fjallgöngu Férðafélags Íslands. Júlí er víst sjöundi mánuður ársins og því ætti þetta að vera sjöunda gangan. Hjá mér er þetta víst bara þriðja gangan. Ég var að kenna, ég var í prófum, ég var veikur og ég var í útlandi að keppa í hjólreiðum.
En jæja. Núna var farið á Tröllakirkju sem heitir svo út af því að þar bjuggu tröll all ógurleg í árdaga. Heldur leist þeim illa á þetta búandlið sem settist að og fóru að tínast á brott eitt og eitt. Að lokum var tröllskessa ein eftir sem þraukaði lengst. Þegar innrásarliðið var orðið kristið og datt aukin heldur í hug að byggja kirkju hérumbil undir fjallinu eða á Stað þar sem Staðarskáli er núna þá var skessunni nóg boðið. Tók hún upp einn hnullung all vænan og fleigði í átt að kirkjunni. Hugðist hún murka líftóruna úr þessum vesældarsálum sem sóttu guðsþjónustu og jafna kirkjuóskapnaðinn við jörðu. En skessan kastaði grjótinu eins og einhver kerling [hún Linda benti mér á að þetta hefði líklegast verið ástæðan - skessuræfillinn hefði kastað eins og hver önnur kerling - ef tröllkarlarnir hefðu ekki verið flúnir af hólmi hefði eflaust farið öðruvísi] og dreif ekki alla leið og kom steinvalan niður í hestaréttina á Stað. Drápust heilir fjórir hestar en kirkjugesti sakaði ekki. Sá tröllskessan þá sitt óvænna og hrökklaðist á brott. Steðjaði hún út á Vestfjarðakjálkann og æddi þvert yfir Steingrímsfjarðarheiði. Fór þar um háfjöllin [sem eru reyndar ekki sérlega há og öll lægri en Tröllakirkjan góða] og fann sér loks bústað í Hrolleifsborg í Drangajökli. Hefur eflaust verið færra mannskepna norður þar og meiri friður fyrir guðlegum predikunum.
Skessusöguna kann ekki nokkur maður lengri en reyndar væri gaman að skoða hvort það sé einhver stór steinn í eða við rétt eða einhvers staðar nálægt Stað. Finnst mér ekki ósennilegt að eitthvað slíkt hafi verið kveikjan að þjóðsögunni.
En við urðum ekki vör við neinar skessur og gekk gangan vel upp og niður aftur. Reyndar ekki allir á eitt sáttir um hvaða fjall væri hvað af þeim fjöllum sem við sáum. Er nokkuð viss um að Skjaldbreiður var ranglega kennd vinstra megin við Okið þar sem hún á [skv. landakorti] að sjást yfir Þórisjökul. Líklega sást Hlöðufell á milli Þórisjökuls og Eiríksjökuls. Síðan var helst til of mikið mistur til að það komi fram á myndum og áttavitastefnur voru ekki teknar en ekki vitað með vissu hvort fjall sem við sáum var Krákur eða Mælifellshnúkur. Svona eru þá leiðsögumenn!
En veðrið var gott skilst mér í fyrsta sinn í þessum ferðum. Hefur í öllum öðrum ferðum þessa hóps verið misvont og afleitt í fyrstu ferðinni sem ég til að mynda fór í.
Smá jarðfræði í lokin
Jarðlög, lárétt og hallandi í Tröllakirkju
Á leiðinni niður tók ég eftir undarlegum halla á jarðlögum ofarlega í Tröllakirkjunni. Fjallið er skv. því sem kemur fram í bókinni "101 tindur" eftir Ara Trausta og Pétur Þorleifs [Pétur skrifaði þessa lýsingu], rofinn jarðlagastafli myndaður fyrir 6-7 milljónum ára síðan. Út frá jarðfræðikortinu af öllu Íslandi frá Náttúrufræðistofnun Íslands þá er fjallið hins vegar basískt eða ísúrt gosberg og setlög frá fyrrihluta Ísaldar, þ.e. 0,8 til 3,3 milljón ára gamalt. Svæðið umhverfis er hins vegar blágrýtisstaflinn eldri en 3,3 milljónir ára. Ég hef trú á að jarðfræðikortið sé réttara. Svarta línan sem liggur þarna í gegn táknar "þykkar samfelldar setlagamyndanir með surtarbrandi".
Jarðlögin sem ég sá koma fram á myndinni að ofan og hef ég ekki almennilega skýringu á þeim. Hvort þau mynduðust svona hallandi eða hölluðust eftirá. Hvort þau ná undir hraunlagastaflann sem myndar fjallið að öðru leyti eða hvort þau liggja að honum og gætu þá verið yngri en hraunlögin vinstra megin. Myndin er annars tekin í norðlæga átt og hraunlögin hallast því niður til hægri.
Jarðfræðikort af Tröllakirkju

