Showing posts with label Jöklaferð. Show all posts
Showing posts with label Jöklaferð. Show all posts

Saturday, May 28, 2011

Grímsvatnagosið skoðað

Close to the crater in Grimsvötn 2011
Á "gosgerðum útsýnispalli".  Líklegast myndað eftir að snjórinn nær gígnum hafði bráðnað og þessi þá fallið fram.  Myndað sprungu sem var síðan fallin niður.  Á mörkum þessara "snjófalla" voru síðan sprungur sem þurfti að klofa yfir.  Gufan sem sést til vinstri er beint úr gosgígnum sem lét ekki mjög ófriðlega að þessu sinni.

Það var hringt í mig að kvöldi þriðjudags og var þar Villi sem vinnur með bróðurnum manns að bjóða í gosbíltúr.  Komst ekki að því fyrr en eftirá að það sem hékk á spýtunni var að gera nokkuð vel heppnaða tilraun til að borga fyrir myndatökurnar sem hann og hans fjölskylda kom í til mín þar síðasta haust. Ég vildi ekki þá fá borgun ekki frekar en Villi þegar ég ætlaði að fá að borga minn part af olíunni á vélfákinn.

maðurinn á jökli Ég var mættur til þeirra upp úr kl 6 um morguninn og það var haldið af stað hefðbundna leið eftir að hafa þurft að snúa við í úlpuerindagjörðum og bílskúrsþrifsmálum. Fanney dóttir þeirra Villa og Maríu hafði gleymt úlpunni sinni sem uppgötvaðist við Rauðavatn og svo var einhver hroðalegur útblástursblettur á bílskúrshurðinni sem þurfti að hreinsa... en þetta er nú útúrdúr.

Þetta voru alls 6 jeppar með í hópnum sem mér skildist að Villi hefði smalað saman til að fara í ferðina og var safnast saman í Hrauneyjum.  Þekkti ekki marga en samt Alla úr JÖRFÍ ferðum og svo var einn gamalla góður Stefán þarna sem ég hafði keyrt í Jökulheima 2007 til að taka þátt í 50 ára fagni JÖRFÍ skála á Grímsfjalli.  Svo var reyndar einn jeppinn farinn eitthvað lengra og fór einbíla á undan okkur á jökulinn.  Var þar Gunni Hjartar sem stúdentaðist með mér hér í dentíð.

Leiðangursmenn almennt samt eitthvað missjóðaðir í jöklaferðum og þá reyndar aðallega farþegasætisferðafélagarnir sumir hverjir að fara á jökul í fyrsta sinni sýndist mér. Ég hins vegar nokkuð góður með mig hafandi verið nokkrumn dögum fyrr á Grímsfjalli.

ERS_6219

Í Jökulheimum var töluverð aska inni í skálanum.  Stoppuðum svona til að kíkja inn og fá okkur nestisbita.  Enda Villi með umsjón með skálunum eða í öllu falli með lyklavöldin. Öskuryk var yfir öllu inni í skálanum en samt ekki meira en ryk.

ERS_6220Alli öslar sanddrulluna í Tungnaá

Tungnaá var ekki mikill farartálmi. Einhver sanddrulla en eiginlega ekkert vatn. Alli valdi leiðina yfir ána sem var nokkuð hefðbundin og mjög þægileg.


Þunnt öskulag á jöklinum neðanverðum

ERS_6238
Rifskaflar (snjó) huldir öskulagi

Neðst á Tungnaárjökli var þunnt öskulag yfir öllu en náði ekki að þekja snjóinn alveg. Í stað þess að allt væri í hvítum jöklalegum tóni var hér allt grátt yfir að líta. Fljótlega komum við að "öskusköflum" sem minntu mjög mikið á rifskafla á jökli, sbr. mynd að ofan. Við nánari athugun kom enda i ljós að þetta voru bara venjulegir rifskaflar á jökli en hins vegar huldir ösku. Askan virtist safnast aðeins í þá þannig að þar sem almennt var einungis einhverra millimetra öskulag var kannski 1-2 cm yfir þessum rifsköflum. Askan sjálf þegar hún myndaði skafla var meira bara í nokkuð sléttum flekkjum.

ERS_6257
Við veðurstöð T06N-8

ERS_6259
Stefán ekki alveg vanur jöklinum svona á litinn!

ERS_6269
Á öskujökli

ERS_6273
Uppgufun úr öskunni

Eftir því sem ofar dró var komið í nokkuð samfellda ösku sem varð þykkari og þykkari en jafnframt grófari og grófari sem nær dró eldstöðinni. Tók þrjú öskusýni á leiðinni. Var reyndar ekki nógu vel útbúinn til sýnatöku. Fyrsta öskusýnið fór í kókflösku og tvö þau næstu í nestispokana.

Þó ekki væri mikil sól þá hitnaði askan og rauk úr henni gufan eftir líklega bleyti, rigningu eða áfall liðinnar nætur. Voru umræður um hvernig jöklinum myndi reiða af og taldar mestar líkur á að eiginlega alls staðar yrði bráðnun minni út af öskulaginu. Veit raunar ekki alveg við hvaða þykkt öskulagið fer að einangra í staðinn fyrir að valda aukinni bráðnun. Hef bæði heyrt 3mm og 3cm. En ef miða má við Odd Sigurðsson (2011) þá má miða við hálfan cm, þ.e. að fárra mm öskulag auki bráðnun en að vitað sé að hálfs cm öskulag Mýrdalsjökuls á vatnasviði Markarfljóts eftir eldgosið í Eyjafjallajökli 2010 hafi minnkað bráðnun sumarið 2010.

En síðan er væntanlega ljóst að á þeim stöðum sem askan er ekki mjög mikil þá mun hún renna til í einhverja hauga og valda mjög mikilli misbráðnun á næstu árum. Þar sem hins vegar öskulagið er 10cm eða meira má væntanlega gera ráð fyrir að bráðnun verði lítil sem engin og að öskulagið nái ekki að renna til þannig að snjólagið undir öskunni fái bara að liggja þarna og skríða síðan hægt og rólega til láglendis.

Síðan var ekið inn í Grímsvötn.

ERS_6332
Ljósmyndari á "útsýnispallinum".  Með í för var þessi sem ég held að sé einhver sænskur ljósmyndari.


Close to the crater
Grjót sem lá hér og þar.


Close to the crater in Grimsvotn
Sundursprunginn jökullinn nærri gosstöðvunum.  Þessi gjá er í framhaldi af þessu "snjófalli" sem sést á fyrri myndunum.

Ætli myndirnar tali ekki bara sínu máli.  Við keyrðum fyrst inn í grímsvötn að vestan.  Stoppuðum líklega í rúmlega 2km fjarlægð frá gígnum.  Út af snjóbráðnun líklega var nokkuð mjög sprungið í kringum gíginn og svæðið afskaplega langt frá því að vera öruggt.  Ekki mikill jöklabúnaður með og eiginlega ekki heldur verið að nota það sem við þó vorum með.  Hefði verið gaman að vera með meir jöklagönguliði og komast nær en það hefði svo sem líka verið hættulegt út af eldvirkni.  Þetta var raunar alveg nógu varasamt út af sprungum.  Þurftum bara að stíga yfir sprungurnar sem voru þarna og passa okkur sem mest við máttum.  Allt fór þetta vel.

Ofan á snjónum var öskulag þarna.  Mældi ekki þykktina þarna en hún var talsverð.  Reyndar mesta þykkt sem við fengum var í átt að Háubungu skildist mér eitthvað á annan metra en Björn Oddsson hafði beðið Alla um að mæla öskuþykktina hér og þar.

Á kortinu að neðan má sjá hvar við fórum.  Fyrst (myndir að ofan) stoppuðum við norðvestan við eldstöðina.  Rauði hringurinn á myndinni er eldstöðin frá 2004 (staðsetning sbr. Magnús Tumi, 2004)


mapsource-ferdin med villa
Akstursleiðin.  Við stoppuðum á öllum endum þarna.  Lengst til hægri var farið að JÖRFÍ skálanum á Grímsfjalli. Rauði hringurinn er staðsetning gosstöðvanna frá 2004 skv. Magnúsi Tuma.

Panorama myndin að neðan er frá þessu stoppi Norðvestan við eldstöðina.  Sýnir gíginn og Grímsfjall fyrir aftan.  Ég er reyndar alls ekki alveg sáttur við staðsetninguna á þessu þar sem mér fannst einhvern veginn að gígurinn frá 2004 hefði verið austar og þá svona á að giska fyrir ofan "eirasi.net" merkið á myndinni sem er næst lengst til vinstri á myndinni.  En það er víst einhvers konar sambland af misminni og misskilningi og misathugunarleysi hjá mér.

Grímsvötn 25. maí 2011
Panorama mynd frá fyrri stoppistaðnum (þeim vestari).  Séð til gígsins og Grímsfjall í baksýn.

Svo var ekið upp á Grímsfjall og stoppað á brún vestan við Vestari-Svíahnúk. Sáum þá örlítið ofan í gíginn, sbr. myndirnar að neðan.

View from Grimsfjall
Séð ofan í gíginn frá seinni stoppistaðnum (þeim austari).

ERS_6432

Svo fórum við á Grímsfjall. Skálarnir frekar mjög skítugir að innan en aðallega sá nýrri. Þykkt öskulag, blautt og klesst alls staðar. Nokkuð ljóst að það þarf að þrífa eitthvað almennilega þar.

Nú, svo ókum við bara til baka og gekk heimferðin eins og í sögu fyrir utan að dekk á einum bílnum rifnaði og sprakk með látum. Varð ekki slys af en munaði líklegast ekki miklu.

The great vehicle
Fararskjótinn frábæri.

Sunday, June 08, 2008

Kominn af jökli

Gígurinn frá 2004 í Grímsvötnum

Það var farið með JÖRFÍ í Vorferð á Vatnajökul. Kominn heim með hauga af myndum í farteskinu!

Vonandi væntanlega eitthvað meira sett inn hér bráðlega og alveg örugglga reyndar koma myndir á Flickrið manns.


....

Tuesday, October 09, 2007

Helgi á mannbroddum og mánudagur til sköfu

Morgunmugga
Cesarur hrímaður á mánudagsmorgni

Það biðu manns morgunverk á mánudagsmorgni og af því að maður reyndi að vera smá herralegur þá var Runi bara skafinn líka. Létt verk og löðurmannlegt. En það var viðburðarík helgin getur maður sagt.

Fyrst skal það telja til tíðinda að við komumst bæði í partý ég og HK saman á Cesari sem var skilinn eftir sakir almenns drykkjuskapar. Var þar verið að kveðja Erik sem skal af landi brott í einhverja mánuði.

Það var komið heim einhvern tíman eftir miðnættið en samt ekkert svo rosalega seint. Samt var ástand manns þegar vaknað skyldi klukkan 7 á laugardagsmorogni ekkert sérlega björgulegt. Arna kom og David bjargandi málunum og manni var ekið á M6 með viðkomu á Essó þar sem nestið var verslað í snarhasti. Það var ekki mikil gleði sitjandi í Ásnum á leið á Sólheimajökul en þar var mannbroddabrölt fram og til baka, æfðar sprungubjarganir og ísklifrað af miklum móð!

Iceclimbing in SólheimajökullAð krafla sig upp úr svelgi einum hroðalegum!

Þetta gekk nú svo sem allt ágætlega alveg þangað til minn fór að síga niður og endað á hvolfi dinglandi yfir 10 metra djúpu hyldýpinu! En þetta fór svo sem allt ágætlega fyrir utan að afturendinn á undirrituðum varð eitthvað sár á eftir.

Hagafellsjökull og vatn
Hagavatn og Hagafellsjökull að leika sér í góða veðrinu

En svo kom sunnudagurinn og þá var haldið á allt annan jökul. Ég, HK og Gúnninn saman á Cesari sem var hinn kátasti með að fá að fara af bæ! Förinni var ætlað að verða hinn frækilegasti mælingaleiðangur þar sem við höfðum tekið að okkur að mæla sporðinn á Hagafellsjöklunum. Það gekk allt ágætlega þangað til GPS tækið þóttist verða minnisfullt og HK tók á það ráð að beygla á sér andlitið þannig að tækið tæki sönsum, sem og það gerði!

HK and Gúnni veltandi vöngum
HK og Gúnninn veltandi vöngum

Nú og svo kom mánudagurinn ágætur með sköfunni. Datt síðan svona í hug að setja þessa mynd hér sem var tekin á heimleið mánudagsins og er hægt að horfa á í einhverri þrívídd fyrir þá sem slíkt vilja iðka!

In three dimension
Þetta snýst um að gera sig öfugt rangeygðan fyrir þá sem ekki vita!

Sunday, June 03, 2007

Að koma til byggða

Það var undarlegt að koma heim

Engin HK í hæðargarðinum. Minn bara í sturtu og að slappa af oghún bara að hringja ofan af fjalli... nebblega sko Grímsfjalli!

VíðatturÞað var nefnilega farið í Vatnajökulsferð JÖRFÍ en samt bara í svona mýflugumynd, þar sem þetta var bara helgarrúntur hjá mérnum. Verður nú sem gjörlast sagt frá einhverju sem gjörðist þarna á Fjallinu!

Beeing ready for going to mountains
Fyrst var safnast saman á Select alveg eins og í fyrra þegar ég mann ennþá þegar Jöklarauður Fordinn kom í fyrra og þetta var alveg eins nemá núna var óttalegt skítviðri og svo auðvitað aðalið að ég var að fara með. Það var eiginlega mikill spenningur hjá manni. Einhvern veginn hafði mann alltaf dreymt pínulítið um að fara í svona rannsóknarleiðangur á fjöll og þá ekki hvað síst jökul. Ferð svona með einhvern tilgang og núna var ég víst með á listanum. Eftir dálítið japl, jaml og fuður var haldið af stað og ég á þeim rauða sem Eiríkur nokkur stýrði af miklum móð. Drundi mikið (ekki í Eiríku sko, heldur þeim rauða) og var mjakast burt úr bænum. Flesetir ef ekki allir utan Steina fólksbíkaböðul með kerru.

Ferðin sóttist ekki mjög hratt. Þungt hlass hjá mörgum en áfram mjakaðist þetta. Steini líklega orðinn lang fyrstur en við einhvers staðar á eftir aftarlega í lestinni. Það var spjall á leiðinni eins og lög gera ráð fyrir. Alls konar fjallaferðablaður og einhverjar reynslusögur, ég, HK og Eiríkurinn.

Þetta gekk allt ágætlega fyrir sig. Hittingur var ekki fyrr en í Hrauneyjum og svo komust allir sheilir í Jökulheima. Reyndar þurfti eitthvað aðeins að draga spíttarann hann Steina uppúr einhverri drullu þar sem hann villtist út fyrir veg. Svo sem kannski allt í lagi en landvarðahjartað hefði hikstað aðeins ef það hefði séð hvar festan var og ég held að það hefði sprungið ef það hefði orðið vitni að undarlegum skriftarverkum. Minn reyndar ekki alveg að skilja svona en hvað um það, minn getur ekki skilið allt og enda nýgræðngur í svona ferð.

Já algjör nýgræðingur og fékk þetta líka fína nýgræðings verkefni þegar upp í Jökulheimana var komið. Núna kann minn sko alveg að dæla olíu með handdælu á vörubíl, jafnvel þó einhver rafmagnsdæla sé einhvers staðar innan seilingar. Já ekki amalegt að vera í sinni fyrstu ferð og fá öll skemmtilegustu verkin þegar flestir voru bara að koma sér til kojs.

Sveinbjörn og fleiri eitthvað að ferðbúast
Og það var engin miskunn hjá Magnúsi (Tuma sko). Farið að sofa eitthvað klukkan tvö en ræs klukkan eitthvað sjö. Ekki margir tímar það til svefns. Það vildi reyndar til að við HK vorum bæði í ágætri æfingu og vön að svona stuttsofa. Þetta var reyndar bara ívið lengri svefn en var stundaður á H34 vikuna á undan.


Það þurfti að koma alls konar dóti fyrir. Fyrst var ferðbúist í Jökulheimum og það gekk nú svona frekar stóráfallalaust fyrir sig.

HK
Bíllinn fylltur af alls kyns dóti og HK sitjandi í miðri súpunni glöð á svip!
Svo varð reyndar eitthvað skvamp í ánni. "Mikill sandur - mikill sandur" kom í talstöðinni og þetta leit út fyrir að ætla að verða fjör. Stóri Econlininn eitthvað að brasast úti í miðri á en það voru til spottar og ekki mikið mál að losa hann. Svo var bara farið aðeins neðar og allt gekk eins og í sögunni. Yfir komust allir.

Gusti on the bike

Það voru notuð alls kyns farartæki áfram. Reyndar var fólksbíllinn skilinn eftir í Jökulheimum enda ekki sérlega viturlegt að þjösna honum yfir Tungnaá og efast maður eiginlega um að það hefði tekist. En svo voru sumir frumlegri en aðrir í fararskjótavali og var Gúsi sá frumlegasti á sínum mótorfáki sitjandi á fáknum uppi á kerru á meðan sullast var yfir seinasta álinn.

ERS_6905

HK búin að umstafla skmá

Svo hófst hið herjarinnar umstafl. Það er ekkert áhlaupaverk að koma svona leiðangri af stað. Heilir þrír tugir manna og drasl og dót í samræmi við það. Matur og útbúnaður og alls konar rannsóknardrasl. Merkilegast fannst nýgræðíngnum að sjá íssjána hans Finns. Skildi reyndar ekki allar útskýringarnar en þetta er snilldartæki og búið að kortleggja botninn á öllum helstu jöklum landsins ef ég skil málið rétt.

Það var mart í mörgu að snúast og minn svona reyndi að vera ekki mikið fyrir og hjálpa svo til þar sem hægt var að sjá í hvaða átt átti að bera einhvern brúsann, kassann, töskuna eða hvað sem var. Það var strappað fram og til baka og ýmsir hnútar bundnir en svo var kominn tími til að setja í gang - og það gerði Gústi - eða var það Hálfdán, held það reyndar en skiptir ekki máli.

Gústi að koma hjólinu í gang
Gústi ætti að minnsta kosti af stað á hjólinu og hélt svona nokkurn veginn jafnvægi þó það mátti vart milli sjá hvort hann ætlað að steypast á hausinn eða haldast á réttum kili. Og jú hann hélst á réttum kili en þetta var eitthvað maus og svo var krapi og svo var lausasnjór og svo var brött brekka og vesen og hjólið endaði nú bara aftur uppi á kerru. Tilraunin samt hin skemmtilegasta.

Boli með þungan drátt

Trucks on the way to Grimsfjall in Vatnahökull

Boli (Taurus) is the snowmobile

Kata og allir hinir tóku því bara rólega...
Kata og allir hinir

En Sandra brosti breitt og hausinn á pápa hennar gægðist út...
Sandra og hausinn á pabba hennar

... en það stóð ekki lengi því sá gamli stökk á fætur og rétt náðist á mynd áðúr en hann var rokinn eitthvað...

Steini á fartinni

Þröng í þingi í Sovét á Grímsfjalli

Í Sovét gefst síðan tími til alveg allskyns. Það var spólað myndunum manns sjálfs yfir á Skinnið [eða heitir hún það ekki, nýja HK tölvan...] og allir voru að dást að meistaraverkunum eða svo mætti að minnsta kosti bestast halda!
Myndaskoðun
Það var Tanya, Eiríkur og Erik.



Svo urðu allir eitthvað hálf svona súrir yfir því að við fimm værum bara að fara að yfirgefa svæðiuð!
Spekúlasjónir í Sovét


Flower made by my new macro lens






.... en kannski eitthvað meira til að koma hér á morgun kannski!