Tuesday, June 15, 2021
Gosferð hin fimmta, 12. juní 2021
Ég hálfskammast mín fyrir litla frammistöðu en ég fór bara í fimmta sinn að eldgosinu við Fagradalsfjall um síðustu helgi. Kominn einn og hálfur mánuður síðan ég var þarna síðast og talsvert er þetta orðið með öðru sniði en var. Þetta var dálítið eins og hvert annað túristasvæði og minnti dálítið á Geysi í Haukadal stemningin. Og svo hefur bæst við talsvert mikil þotuumferð. Mér sýnist að flestar millilandaflugvélar lækki flugið yfir gosstöðvunum.
Var einn að þvælast og í raun á heimleið frá því að skoða bíl á Selfossi sem ég ætlaði e.t.v. að kaupa en er víst núna úr sögunni því ég keypti mér eitthvað allt annað.
Hraunið er ammars komið út um allt og ekkert hægt að komast að gígnum sem vellur aðeins úr en sýnileg virkni var lítil fannst mér. Hraunið er að verða þokkalega myndarlegt en þetta er í fyrsta skipti sem mér fannst að orðið "ræfilslegt" ætti e.t.v. við eitthvað af upplifuninni.
Sunday, May 30, 2021
Skokkað um brunarústir Heiðmerkur
Heiðmerkurskokk í dag sem varð meira göngutúr til að skoða hvernig brunasvæðið er að þróast. Þó þetta sé talsvert skelfilegt þá er líka mjög áhugavert að fylgjast með hvernig gróðurinn ýmist tekur við sér eða tekur ekki við sér.
Skráð inn löngu eftirá af Facebookfærslu
Wednesday, May 05, 2021
Heiðmekureldar
4. maí
Ekki það skemmtilegasta sem ég hef ljósmyndað. Einn af þeim stöðum sem skiptir mig hvað mestu máli brennur eins og ég veit ekki hvað! Ég varð að sjá hvað væri að brenna enda heldur RUV því fram að þetta sé við Vífilstaðavatn. Þetta er hins vegar sunnan Hjallabrautar eitthvað rétt vestan við þar sem Ullarstígurinn liggur yfir Hjallabrautina.Ég gat ekki séð að slökkvistarfið mætti sín mikils því miður en vonandi næst að slökkva í þessu áður en allt hólfið sem er afmarkað af vegum brennur.
Kúlupanorama hér: https://kuula.co/post/7SsFx
Daginn eftir... 5. maí
Fór upp í Heiðmörk að skoða verksummerki eftir eldinn. Þó þetta sé ekki gott og líti ekki vel út þá er þetta skárra en ég hélt eða óttaðist. Líka alveg ljóst í mínum huga að slökkviliðið hefur unnið þrekvirki.Kúlupanroma er https://kuula.co/post/7Sy6L og https://kuula.co/post/7SynZ
Skráð inn löngu eftirá af Facebook færslum.
Thursday, April 22, 2021
Hraunslettuskammtur númer 4: 21. apríl 2021
Fjórða ferðin að skoða eldgosið, 21. apríl 2021. Eiginlega sú erfiðasta. Fórum bræður hjólandi austan Fagradalsfjalls, leiðina sem flestir reyndar fjallahjóla skilst mér. Of miklar brekkur fyrir minn smekk enda ég hálf útkeyrður eftir vinnuálag síðustu daga, ekki búinn að borða almennilega og með einhvern magaverk. En það kemur málinu ekki við því við vorum að skoða eldgos.
Höfðum reyndar eiginlega báðir gert ráð fyrir að fara beint inn í Meradali sem átti að vera án mikillar hækkunar, skilja bara hjólin eftir þar og ganga að gosstöðvunum þar fyrir ofan. Ég var með track sem var sótt bara á Strava og svo mættum við Þorvaldi Þórðarsyni sem mælti eindregið með að fara að sem hann kallaði syðri leiðina. Þá komum við í skarð sunnan við Stóra-Hrút og þar vestan við er hraunið núna mest að skríða fram. Þetta tók allt of mikið á fyrir okkar smekkk að drösla reiðhjólum upp allar þessar brekkur.
Vorum helst til seint á ferðinni þannig að ég náði ekki að skoða aðstæður af neinu viti. Var auðvitað líka í drónamyndatökum og þetta var allt saman bara einhven veginn og einhvern veginn. Myndin að ofan sýni líklega svæðið hvað best af því sem ég þó náði að gera. Kúlupanorama sem var tekin um svipað leyti og á svipuðum stað líklega sýnir gossvæðið alveg sæmilega.
Myndirnar bera það með sér að vera ekki teknar í góðri birtu en gosið er samt líklega mest fyrir augað þegar það er farið að rökkva. Gossvæðið er annars gjörbreytt frá því ég var þarna síðast á öðrum degi páska. Fyrstu tvö skiptin sem ég fór að skoða gosið á degi þrjú og svo aftur viku seinna var gosið eingöngu í Geldingadal. Það var fyrir um mániði síðan. Á öðrum degi páska fyrir um tveimur vikum var efsti gígurinn sð opnast og hraun fór beint niður í Meradali. Sá gígur er núna þagnaður í bili a.m.k. en nýir gígar milli hans og Geldingadals með hvað mesta virkni. Núna rennur hraun að mestu í litla dalkvos vestan Stóra-Hrúts sem telst líklega vera efri hluti Meradala. Þegar sú kvos fyllist fer hraunið annað hvort í norður ofan í Meradali eða í suður ofan í Nátthagadalinn. Ég ætla áfram að veðja á Meradalina en samt er Nátthaginn vel líklegur líka.
Gengum að gígunum sem opnuðust eftir páska og þurftum þá að fara niður fyrir hrauntotu sem kemur úr Gelgingadal, sjá myndina hér til hliðar. Fórum fyrir hraunið þar sem guli punkturinner. Þessi hrauntota er orðin alveg óvirk og fór ég yfir hana neðst til að prófa að ganga á hrauninu. Það reyndist lítið mál þarna.
Vorum komnir þarna að nýjustu gígunum fjórum borðuðum smá nesti og sáum ljósin hinum megin hverfa hægt og rólega þegar svæðið var rýmt. Stöldruðum eitthvað við og fórum svo til baka. Gengum að hjólunum og það var reyndar frekar þægilegt að hjóla til baka sem var að mestu leyti niður brekkur.

Gígarnir fjórir sem hafa myndast eftir páska og mesta virknin hefur verið í undanfarna viku eða svo.

Sunday, April 11, 2021
Um hættuástand á gosstöðvum í Fagradalsfjalli
Hér að ofan er kort sem sýnir hætusvæðið sem núna hefur verið skilgreint út af hugsanlegum nýjum sprungum sem geta opnast hvenær sem er. Einnig má sjá þrjár ferðir mínar hingað til sem ég hef farið til að skoða eldgosið og verið í mismunandi miklu návígi eins og greinilegt er.
Blái ferillinn er sá sem farinn var á öðrum goseginum, þegar ekkert hafði verið gefið út um hvar fólk ætti að fara fyrir utan að mælt var með að fólk myndi klöngrast erfiða leið yfir hraunið frá Bláalóninu. Ég ákvað að fara um Nátthagadal, þægilega leið án klöngurs eða mikils bratta. Við vorum meðvituð um að upphaflegar hugmyndir um hvar eldgosið kæmi upp tengdust Nátthaga og því höfðum við varann á þar.
Græni ferillinn var alfarið á ábyrgð almannavarna og viðbragðsaðila sem gáfu út stikaða gönguleið sem þeir aðilar væntanlega töldu öruggasta.
Blágræni (cyan) ferillinn lengst til hægri er svo þegar ég kom að gosstöðvunum úr austri og þyrla Landhelgisgæslunnar ómakaði sig við það að segja mér að svæðið væri rýmt og ég mætti ekki fara nær og þyrfti að koma mér í burtu.
Augljóslega skoðaði ég ekki mikið eldgos þegar ég var rekinn í burtu á svæði sem er fjarstæðukennt að hafi verið hættulegt. En út frá því hvernig græni ferillinn (opinberi ábyrgi ferillinn sem var metinn öruggur væntanlega af yfirvöldum) er borinn saman við bláa ferilinn (útfærður af mér út frá þeim upplýsngum sem ég var með um gosið á öðrum gosdegi) má spyrja má sig hvort það sé ekki bara betra að fólk með þokkalega útivistarreynslu og ágæta þekkingu á jarðvísindum fái að stýra eigin öryggi sjálft án opinberra boða og banna.
Tuesday, April 06, 2021
Þriðja gosskoðnarferðin
5. apríl 2021
Hugmyndin var að koma bakdyramegin að Fagradalsfjalli, leið sem er ekkert verið að loka neitt sérstaklega þegar svæðið er auglýst "lokað" og það er rýmt. Ég var í raun bara að fara í hjólaferð með viðkomu á gosstöðvunum. Aðallega langaði mig til að taka 360° panoramamyndir með drónanum. Verst að það passaði ekki alveg við flugreglur en af hverju ætti ég að vera að fara eftir öllum reglum þegar alvöru flugmennirnir eru ekki að gera það. Þeir fara of lágt og þá stelst ég bara til að fara of hátt.
Keyrði Reykjanesbrautina og beygði að Keili og svo átti að hjóla. Þegar ég var að nálgast þann stað sem skyldi hjólað frá, byrjuðu hádegisfréttir í útvarpinu og ég heyrði bara hætta, rýming og Fagradalsfjall. Jájá, hugsaði ég með mér... það er sem sagt of mikið gas eina ferðina enn... en þetta var eitthvað annað. Ný sprunga hafði opnast og ljóst var að ferðin hjá mér yrði eitthvað öðru vísi en ráð hafði verið fyrir gert. Ákvað að fara af stað þrátt fyrir að gera ekki ráð fyrir að geta skoðað eldgos að neinu ráði. Ég gæti a.m.k. reynt að taka einhverjar drónamyndir.
Hjólatúrinn gekk ágætlega og ómerkt leið sem ég var búinn að finna út yfir hraunið var hin besta. En þetta er nú samt alls ekki einfaldasta leiðin til að komast að eldgosinu en er samt svona ágæt privatleið sem er hægt að fara á eigin vegum.
Flugumferð talsverð og ég búinn að heyra í fréttum að það væri kannað úr lofti hvar fólk væri statt vegna rýmingar og líklega einhvers staðar skráð að einn maður í bláum jakka á hjóli nálgaðist Fagradalsfjall úr austri. Ég fór í raun lengra en ég hafði ætlað mér og var loks kominn á austur brún Meradala og þá mér til talsverðar furðu sá ég hvar hraunið var þar komið ofan í dalinn.
Var þarna staddur í vel rúmlega kílómeters fjarlægð frá hraunsporðinum. Gekk áleiðis upp á næsta hól þegar þyrla LHG flögraði yfir og lenti á hólnum. Var ég upplýstur - í einhverri vinsemd samt - að svæðið væri rýmt og ég eiginlega í óspurðum fréttum sagðist alls ekki ætla að fara lengra og færi bara til baka. Var það látið gott heita. Spurði reyndar og sagði svo hvort ég mætti fljúga á dróna. Sá frá LHG sagðist ekki geta bannað mér það en eindregin tilmæli að gera það ekki... held að hann hafi sagt ef ég gæti komist hjá því... sem ég komst auðvitað ekki hjá að gera og því eru til þessar ágætu drónamyndir úr ferðinni.
Ég sem sagt flaug drónanum eftir öfluga hvatningu frá Ragnhildi og Kristjáni. Sé ekki mikið eftir því en sé frekar eftir að hafa ekki flogið meira. Á myndinni að ofan er dróninn kominn nokkurn veginn að hraunjaðrinum sem er að skríða fram Meradalina í austurátt. Ælunin hafði svo verið að taka kúlupanoramamyndir og þar sem almennt hafði verið skrúfað fyrir flugumferð á svæðinu þá var það vel framkvæmanlegt. Endaði á að fljúga beint upp í loftið þar sem ég stóð.
--------------------
Kúlupanorama í fullri upplausn
--------------------
Þessi skrípaleikur að banna vönu útivistarfólki för um land þó það sé eldgos einhvers staðar í kílómeters fjarlægð er einhver mesta della sem hægt er að hugsa sér. Hættan sem ég var í þarna var algjörlega engin en ég sem sagt bara fór að koma mér til baka. Í heildina samt ágætlega heppnaður túr.
Tuesday, March 30, 2021
Gosmökkurinn
Ég sem ætlaði að gefa eldgosinu frí í dag og fara í Bláfjöll. Var eitthvað að myndast og náði líklega athyglisverðu fyrirbæri alveg óvart á mynd. Hafði tekið eftir áberandi skýjahnoðrum í stefnu eitthvað út á Reykjanes en svo brast á með þoku og éljagangi. Á bakaleiðinni var aðeins drónast og eftirá þá sé ég að þessir uppstreymisbólstrar yfir hrauninu sem ég var að heyra um í fréttum náðust þarna á mynd. Keilir sést ógreinilega og það passar að eldstöðin er rétt þar vinstra megin.
Einhver 360° panorama þarna í kuula.co linknum [er sem sagt ekki víruslinkur] ... en það var upphaflegur tilgangur myndarinnar að prófa slíkt.
kuula.co linkurinn
kuula.co linkurinn
Subscribe to:
Posts (Atom)