Sunday, April 29, 2007

Flutningahelgin mikla afstaðin!

Þegar lífið fer allt úr skörðum



....


Og svo hefur bloggið mitt verið uppfært sæmilega heiðarlega í nýjan blogspotta!
En það var reyndar ekki gert fyrr en einhverjum dögum eftir að hafist var handa við þessa færslu að ofan sem var reyndar þá (eða er) óttaleg eymdarfærsla!

Það er reyndar ekkert commentakerfi farið að virka en það kemur líklegast einhvern tíman!

Saturday, April 21, 2007

Ef ég gæti bloggað!

Erfiðir tímar fyrir bloggarann


Blogspot er hættur að skilja mig og er það skýringin á þessum frekar stuttaralegu bloggfærslum....

Ef mér tekst ekki að bæta við þessa þá má skoða hér: eirasi.blog.is


....


Þetta hefur nefnilega verið þannig að bara sumt hefur birst en annað ekki og aldrei hægt að bæta neinu við eða breyta!
.... annars ef þetta birtist þá er þetta komið eitthvað í lag!


....


Vei vei vei - þetta kom!!!!!!!!!!!!!! ég get tekið blogg-gleði mína á ný!!!!!!! eða vonum það!

Og úr því þetta er eitthvað farið að virka þá verður eitthvað bloggað. Annars síðasgta bloggfærsla átti að vera ferðasaga frá Dresden þegar við fórum við illan leik með gubbupest og ógeð til útlanda að heimsækja Guðrúnu og Kristoff. Hroðalega erfitt ferðalag en alveg frábær ferð!

Og færslan þar á undan átti að vera um þegar allt gerðist í einu. HK kláraði HR, HK kláraði MT og við fékkuðum afhentan Hæðargarðinn!

Thursday, April 12, 2007

Friday, March 30, 2007

Að standa á tímamótum...

... þegar allt gerist í einu!

The Happy Couple



....

Sunday, March 25, 2007

Tveir skógarpúkar ...

... fóru á flakk

we call it nestispása
Eftir að álfarnir í Álakvíslinni höfðu slafrað í sig morgunmatinn og appelsínurnar kláraðar og unnið smá eða jú bara fullt þá urðu þeir að fara smá út og hvað annað en að fara í göngutúr um Elliðaárdal.

Reyndar átti þetta fyrst að verða skokktúr enda ekki vanþörf á að ná af einhverju af mörnum sem virðist ætla að fara að hlaðast utan á mann en einhvern veginn varð skemmtilegri hugmynd að fara bara í göngutúrur og það var gert með nesti og alles. Vorum með prímus og pönnu til að brasa okkur skonsur og stefnan tekin á bekk og borð í Elliðaárda.... Til upplýsingar þannig að sá sem les þetta haldi ekki endanlega að við séum að verða brjáluð þá voru þetta sko eiginlega tilbúnar skonsur, keyptar á okkar eðalfínu Essósjoppu en bara mikið betrari eftir að hafa verið hitaðar svona örlítið á pönnu.

Þetta gekk nú svo ekki alveg þrautalaust fyrir sig. Bekkurinn og borðið fannst bara alls ekki sama hvað var leitað og loks var sest einhvers staðar út í skóg og kveikt bál á prímusnum. Pönnuskömmin var svo eitthvað að hrekkja oss og brenndi allt við eins og henni væri borgað fyrir það. Með þrautseigju og lagni tókst okkur samt að hita þetta svona eitthvað, eftir að hafa smurt allar hliðar skonsnanna og voru þær auðvitað alveg eðalfínar.

Ég fæ annars einhvers konar nostalgíukast í hvert skipti sem ég kem þarna í Elliðaárdalinn. Fór þangað ósjaldan hérna einu sinni. Svamlaði í ánum, þar var líka einhver dularufllur volgur lækur og hver veit hvað. Hellisskútar og alls konar. En alveg makalaust hvað skógurinn hefur elst hratt undanfarin ár. Trén eru einhvern veginn orðin gömul og draugaleg.

Svo var eitt óvænt sem við sáum. Á milli Elliðaánna er gamall farvegur þar sem áin rann einhvern timan, reyndar ekki fyrir svo löngu og þar er lítil tjörn sem var einu sinni hylur við foss sem hét Skötufoss og viti menn... í vorleysingum núna þegar mikið er búið að vera í ánni þá rann vatn í Skötufoss sem aldrei fyrr!
Skötufoss




....

Bara svona alls konar

sem er varla í frásögur færandi

We had breakfast this sunday morning
Við sýndum af okkur hreysti og dugnað og komumstumst fram úr rúminu fyrir hádegi á sunnudegi og meira því það var gerður morgunmatur og aukinheldur þá var hann borðaður fyrir hádegi líka.

Annars vorum við enn duglegri í gær því þá fórum við út að skokka fyrir hádegið en hins vegar eitthvað minni afrek með morgunmatinn, a.m.k. hjá mér. HK fór reyndar á aðra bæi til að fá eitthvað í svanginn og kom ekki heim fyrr en seint og síðarmeir búin að fara í verslunarleiðangur og alles. Enda ekki hægt annað en að fá sér nýja flík þar sem maður er bjóttur í ammimælisveislu forstjórans þar sem jafnvel forsetinn sjálfur var meðal gesta. Ekki amalegt það. Fín veisla hjá Þórólfi.


....En jú annars... það er eitt í frásögur færandi. Þennan sama viðburðaríka morgun voru verslaðir flugmiðar til Þjóðverjalands. Það skal leggja haf undir flugvélg og heimsækja þýðverska í dymbilvikunni en reyndar aðallega Guðrúnu og Kristoff. Það verður gjemoni!

Tuesday, March 20, 2007

Frækiferð var farin hin mesta

Sem er í frásögur færandi

sunday afternoon
Hvað er hroðalegra en að vera vakinn af vekjaraklukkuóféti klukkan sex að morgni... nema ef vera skyldi að vakningin væri á laugardagsmorgni. Já, það er margt sjálfskaparvítið sem maður kemur sér í.

Það skyldi mætt á ónefndarn stað klukkan 7:00 hvorki meira né minna og til að það tækist var klukkan stillt á 6:00 en þar sem letinginn hann ég lá í rúminu þangað til tíumínutúryfirsex eitthvað þá mætti maður auðvitað aðeins of seint. En það var nú samt allt í lagi þar sem einhverjir aðrir innan fjölskyldunnar voru enn slakari við að mæta á tilsettum tíma.

Það var enn beygur í manni og manns konu eftir útafakstur seinustu helgar þegar Cesari leiddist að aka á vegum og ákvað upp á sitt einsdæmi að kanna vegkantinn. Til að minnka líkur á stórslysum var úðað tjöruleysi á hjólbarða og svo var haldið af stað yfir ísilagða Hellingsheiðina í skafrenningsbyl. Cesar fór nú hálfpartinn bara fetið og slapp til því hann var fyrstu í halarófu hinna þriggja.

Svo fór þetta hvíta vaxandi en áfram var halt. Fyrirheitna landið var enn langt undan og svo fór að hvessa og svo var komið rok. Lýst var frati á lokaðar sjoppur suðurlandsins og hvergi neinn drukk að fá. Á skógum var spáð í spilin og nokk ljóst að fyrirheitnalandið á Sólheimajökli væri nokkuð snjói hulið en samt var haldið áfram.

þar var allt á kafi í snjó og eftir engan barning var hætti við og plani A breytt í plan B sem breyttist loks í plan C þegar öll hersingin fór í Fellsmörk.

Þar var líka snjór en þar var hægt að fá sér kaffi og það var gert stórsvikalaust. Og að endingu farið upp á heiði eða þannig einhvern veginn.....



Iceland - Two men waiting


....