Sunday, January 31, 2021

Sunnudagar til matar

Ísinn smakkaður til

Fjölskyldur hittast eða hittast ekki. Mín stórfjölskylda hefur stundum verið dugleg að hittast en stundum ekki. Ragnhildur ákvað að gera eitthvað í málinu og ákvað að boða til vikulegs sameiginlegs snæðings. Hvert sunnudagskvöld skyldi haldið í Fagrahjallann. Fer vel af stað þó vikulega hafi líklega verið dálítið mikið þar sem það er dálítil fyrirhöfn að þó ekki nema tvöfalda eða hér um bil fjölda fólks í mat. Erum búin að fara tvisvar og kannski verður þetta mánaðarlegt eða á tveggja vikna fresti. Í öllu falli allt betra en ekkert. Prik til Ragnhildar og Fagrahjallans.

Tuesday, January 05, 2021

Árið

2020 til 2021

Á Geitlandsjökli um sumarsólstöður

Þá er það komið nýtt og þetta 2020 kemur væntanlega ekki aftur og flestir segja víst vonandi ekki aftur. Líklega lærdómsríkt og mjög sérstakt ár að baki og erfitt fyrir marga en það hafði nú alveg einhverja kosti líka held ég. Það sem truflar mig kannski mest er hvað allt Covid vesen hafði í raun lítil áhrif á mig. Talsvert business as usual og svo kom kannski betur í ljós en nokkurn tímann að það er ekkert allt of margt sem kemur mér úr því jafnvægi eða ójafnvægi sem ég er í. Í það heila má segja að það hafi verið margt annað sem truflaði mig mikið meira en Covid ráðstafanir þannig að þær voru frekar bara í bakgrunni hjá mér.

Svo er stóra spuringin hvað ég geri við þetta ár 2021.

Í könnunarferð á Geitlandsjökli einhverjum dögum fyrir sumarsólstöður. Þóra rennir sér áfram.

Tuesday, December 22, 2020

Líklega met í lélegri sölumennsku

Í framhaldi af því að ég fór að reyna að gera mig gildandi í skíðapreppinu þurfti ég að verða mér úti um einhvern búnað, efni og dót. Eftir að hafa gúgglað komst ég eiginlega að tvennu. Ég ætti sennilega að fá mér alvöru skíðastraujárn því þó að skíðastraujárn kosti fáránlega mikið miðað við venjuleg straujárn þá er það líklega þess virði að eyða 20 þúsund krónum í straujárn ef það getur komið í veg fyrir að maður eyðileggi skíði fyrir mörg hundruð þúsund.

Hitt sem ég komst að er að það þarf líklegast klístur en ekki bara gripáburð til að geta gengið klassíska göngu á áburðarskíðum af einhverju viti. Oftast er talað um klístur með einhverjum hryllingi hér á Íslandi og að það sé eitthvað sem maður neyðist til að nota á áburðarskíði þegar kemur fram á vorið og snjórinn er að verða gömul skítug drulla. það er jú líklegast rétt að þá verður að vera með klístur - enda voru það þær aðstæður sem komu í veg fyrir ánægjulegar skíðaferðir hjá mér síðasta vor - en það er gott að nota klístur sýnist mér mun oftar.
Málið er nefnilega það, eftir því sem ég skoðaði fleiri Youtube video að þessi venjulegi gripáburður virkar bara vel á nýja snjókristalla sem eru beittir og geta gefið gott viðnám við gripáburðinn. Ef kristallarnir hafa brotnað, eru orðnir gamlir (nokkurra daga gamlir) eða hafa jafnvel bráðnað og frosið aftur, þá virkar gripáburður lítið til að gefa grip þó það sé frost og ekkert virkar almnennilega af efnum borin á skíðin, nema hið voðalega klístur.

Ég fór sem sagt á stúfana í eina af viðurkenndustu gönguskíðaverslunum höfuðborgarsvæðsins. Ætlaði að fá mér klístur, hugsanlega einn eða tvo auka stauka með gripáburði, einn auka kork, bursta og sköfu. Svo ætlaði ég líka að skoða hvort þau ættu fyrir mig straujárn á sanngjörnu verði.
Jæja... það var auðvitað biðröð inn í búðina og ekkert of mikil afgreiðsla þegar inn var komið. Ég fann nú samt hvar áburðardótið var. Samtalið var einhvern veginn svona:
Ég: Já, ég er að hugsa um að fá mér klístur til að fá almennilegt grip.
Afgreiðslukonan: Ha, klístur... það er nú aðallega notað bara á vorin þegar snjórinn er allur orðinn bráðinn... ertu viss um að þú æltir að fá þér klístur?
Ég: Já, ég ætla að eiga klístur líka til að nota þegar snjórinn er ekki nýr
Afgreiðslukonan: Já en núna er bara nýr snjór... vantar þig ekki ferkar svona stauka?
Ég: Ha, hvað áttu við með stauka?
Afgreiðslukonan: Nú, svona stauka sem allir eru að fá sér núna. Þessir hér eru vinsælastir.
Ég skoða þessa stauka og sé fljótleg að þetta er það sem ég kalla gripáburð eða upp á ensku gripvax... og það er það sem ég á og virkaði ekki nógu vel og mig langaði til að fá klístur. Sagði því líklega: Já en ég var að hugsa um að f
Ég (dálítið þóttugur og snúðugur): Jæja ef þú vilt ekki selja mér klístur þá er það allt í lagi ég get bara farið eitthvað annað.
Afgreiðslukonan: Fölnar eitthvað og veit ekkert hvaðan á sig stendur veðrið.

Man svo sem ekki hvernig þetta þróaðist alveg en hún sótti einhvern annan sem vissi meira og reyndar talsvert mikið um gönguskíði. Hann hins vegar talaði ekkert of mikla íslensku og var ekkert að skipta í ensku þannig að við skildum hvorn annan ekkert of vel. Það var þarna reyndar eitthvað ótilgreint kit með einni klísturtúbu og einherjum tveimur gripvax staukum. Ekki alveg það sem ég var að spá í að fá mér þar sem mig vantaði a.m.k. ekki bara eitthvað gripvax í einhverju hallærislegu kitti.
Held samt að ég hafi náð að kaupa einn bursta af þeim. Sérfræðingurinn seldi mér einhvern alhliða bursta sem hann sagði að virkaði illa á allt.
Heiðarleg og frábær sölumennska.

Það má alveg geta í eyðurnar um hvaða búð þetta var en ég fór seinna annað og keypi mér ljómandu fínt straujárn í Fjallakofanum og svo fór ég í Sportval þar sem sölumaðurinn var nokkuð sammála mér um klístrið og sagði t.d. að ef það er klaki í brautinni þá virkar ekkert nema klístur. Staujárnið hef ég ekki ennþá notað en klístur fór undir í gær og ég fékk þetta líka ljómandi fína grip og ágætt rennsli í nokkuð margfrosnum snjónum í gærkvöldi í Bláfjöllum. Fór ekki fjölbreyttar leiðir en náði betri tíma en nokkurn tímann áður á öllum leiðum sem ég fór.
Búðin með misheppanaða sölufólkinu var sem sagt margrómuð gönguskíðaverslun en samt hvorki Fjallakofinn né Sportval.
Annars er það að frétta af klístrinu að það reyndist ekki alveg eins vel daginn eftir þegar það var eitthvað snjófjúk og nýjan snjó skóf í brautina jafnharðan. Færið þá annars bara ekkert sérstakt og ég skipti á skinnaskíðin.

Svo varð það verra í dag þegar ég var kominn í skásta frakkann minn og ætlaði í bæinn til jólagjafainnkaupa að skíðin með klístrinu ákváðu að koma með. Þau festu sig við frakkann fína og voru bara komin með mér hálfa leið út í bíl þegar ég rak þau til baka aftur. Frakkinn fékk svo blettahreinsimeðferð og handþvott í kjölfarið. Held að hann verði jafngóður á eftir en það er ljóst að klístur er ekki skemmtilegt nema bara þegar það er undir miðjunni á skíðunum og klessist við klakkann til að gefa góða spyrnu.

Tuesday, November 24, 2020

Skíðin preppuð

preppipreppiprepp... eitthvað á þetta að renna!

Og af því að ég fór eitthvað að tjá mig um skíðaprepp annars staðar, þá ætla ég að hafa pistilinn hér líka. Ég veit ekki hvort ég nái lágmarksviðmiðum. Þegar ég eignaðist áburðarskíði í lok skíðavertðíðarinnar á síðasta vetri fór ég fyrst að gera eitthvað í þessu. Mér fannst almennt að það dót sem var til í útivistarbúðum og var sérhannað til áburðargjafar væri fáránlega dýrt og ákvað því að prófa að fara ódýrari leiðir. Straujárn úr Elkó. Átti fyrir nokkuð gott heimilisstraujárn en fór í Elkó og keypti ódýrasta straujárnið sem ég fann. Kostaði líklega innan við fjórðung af meðal skíðastraujárni.

Nota gamla spýtukubba undir skíðið og festi skíðið með borðaþvingu úr BYKO sem kostaði líklega eitthvað um 10 til 20% af algengu verði á þvingusetti í skíðabúð.

Nota gamalt stabílt vinnuborð í staðinn fyrir sérhannað borð á uppundir 50 þúsund.
Nota svo held ég annað nokkurn veginn eftir bókinni, þ.e. base og áburð (rennslis og grip), kork og sköfur (flata sköfu og sköfu til að ná upp úr miðjufarinu). Þarf líklega að verða mér útum betri bursta og hreinsiefni til að ná gömlum áburði af. Reikna með að kaupa það í skíðabúð.

Ég sé almennt ekki að ég myndi ná neitt meiri árangri með sérhönnuðum skíðaþvingum en eflaust væri skíðastraujárn meðfærilegra en það sem ég er að nota og stillingar á því þannig að ég gæti stillt hitastigið eftir leiðbeiningum framleiðenda áburðarins. Það er reyndar galli á straujárninu að í Elkó fengust bara gufustraujárn og ég nennti ekki að leita að straujárni annars staðar. Gufufítusarnir á straujárninu eru auðvitað aldrei notaðir en holurnar sem gufan á að fara út um, þær eru til trafala.

Svo má það líka fylgja sögunni að það þarf að bera á skíðin þannig að þau renni almennilega. Ég bætti mig sem sagt talsvert þegar ég var búinn að bera á skinnskíðin sem ég er mest á. Og einnig að fljótandi áburður sem er einfalt að bera á hvar sem er, gerir smá gagn á meðan hann er á skíðunum en það eru fáir kílómetrar sem hann helst á er mín reynsla af því. Svo má reyndar líka benda á það að skoðanir hafa verið skiptar um hvort það þurfi eitthvað að vera að bera á... http://www.gyl.fi/rennslisvax-er-haettulegt-brudl/

En mín reynsla er sú að skíði með áburði renni talsvert betur. Jafnvel þó það sé ekkert endilega hárréttur áburður í öllum tilfellum eða neitt sérstaklega merkilegur ábyrður sem er verið að nota. Síðan eru nokkuð góð Youtube video til, eins og þessi hér:
  • Rennslisáburður borinn á: https://www.youtube.com/watch?v=YX-wiE3oItg
  • Gripáburður borinn á: https://www.youtube.com/watch?v=SDASQACrCZ4
  • Gömul skíði, skítug og ógeðlsleg hreinsuð og áborin að nýju https://www.youtube.com/watch?v=lW4K8XpBPck...

......

Svo einhverjum dögum seinna var ég reyndar búinn að kaupa mér fokdýrt straujárn... komst eiginlega að því að það er ekki viturlegt að eyðileggja skíði fyrir einhverja hundraðþúsundkalla af því ég tímdi ekki að kaupa straujárn á einn eða tvo tíuþúsundkalla.

https://www.facebook.com/eirasi/posts/10223983289191096

Friday, November 20, 2020

Matarmenn á fjarfundi

Fjarfundur í gangi í eldhúsinu

Á þessum dæmalausa vinnstað sem ég vinn hjá að starfsmannafélagið var með matreiðslunámskeið í fjarfundi! Ég náði reyndar bara forréttinum þar sem það var ferðalagsundirbúningur í gangi á sama tímaF-. Forrétturinn var rúmlega þokkalegur eins og sést á þessum myndum en var ekki síðri til snæðings! Svo var eiginlega of margt að gera í einu [annað en að elda og fylgjast með á zoom] þannig að ég vona að ég ég finni upptöku fyrir aðalréttinn! En þetta var alveg massasniðugt!

Saturday, November 14, 2020

Það var veðrið í dag... þurfti samt í einu og öðru að snúast en Heiðin há, Heiðartoppur, Fischer E99, nokkuð margra lúmena höfuðljós og smá snjór klikkaði ekki. Geggjað combó en snjórinn á köflum hefði nú samt mátt vera meiri 🙂 Sem sagt... fyrsti í skíðum þetta misserið.

......

Facebook færsla

Sunday, November 08, 2020

Á skógarstíg í Heiðmörk

Tekið í gegnum ultravíðlinsuna á símanum mínum sem bjagar dálítið það sem er í köntunum. Kálfarnir á mér eru sem sagt ekki alveg svona samanreknir í alvörunni.

......

Facebook færsla