Monday, July 08, 2019
Undarlegir dagar
Það var öðrum hvorum megin við páaskana sem mér varð eitthvað illt innan í mér. Líktist mest nýrnasteinum og því bara helvíti vont. Endaði á að fara til læknis og í nýrnamyndatöku en það kom bara ekkert út úr henni – þ.e. engir nýrnasteinar. Verkirnir minnkuðu svo hægt og rólega en var eitthvað verkjaður út af þessu líklega í heilan mánuð. Þar sem ekkert kom út úr nýrnamyndatökunni varð niðurstaðan sú að skoða meira og það er að fara að gerast núna á eftir. Miðað við aldur og fyrri störf var nefnilega talið rétt að ég færi í ristilspeglun.
Núna á hádegi mánudags er ég búinn að vera á fljótandi fæði frá því ég fór að sofa á föstudagskvöldinu. Reyndar dálítið flókið eða lélegar upplýsingar um hvað má. Engar mjólkurvörur en almennt allir drykkir en samt ekki með sterku litarefni. Veit ekki með Bora Bora eða Pina Colade te frá Te og Kaffi þar sem það er mjög litsterkt. Sleppti því held ég alveg eftir laugardaginn.
Svo á „síuð“ kjötsúpa að vera í lagi. Ekki neitt sem kom fram um hvernig hún ætti að vera síuð þannig að til að ég fengi eitthvað í kroppinn þá lét mér nægja að sigta hana. Þorði samt ekki að láta það eftir mér nema bara á laugardeginum. Ætlaði reyndar fyrst að setja hana í gegnum kaffifilter en sýndist að það kæmist ekki mikið í gegnum slíkan filter. Ég held annars að það væri alveg hægt að lifa eitthvað á svona sigtaðri kjötsúpu.
Svo mátti sjúga brjóstsykur og Opal eða slíkt. Ég held að ég hafi innbyrt meira og verra sælgæti síðustu tvo sólarhringana en ég hef gert í mörg ár. Eiginlega hreint ógeð. Svo ekki gott að mér sýnist að það sé ekki lengur seldur almennilegur brjóstsykur í poka. Það er bara eitthvað endalaust hlaupdrasl til. Lét það eiga sig.
Það mátti nota hunang til kaloríuinntöku og ég hugsanlega misnotaði það með að borða hunangið upp úr krukkunni.
En maður lifandi hvað ég hef áttað mig á því hvað ég er háður því að vera alltaf eitthvað að borða. Varð órólegur um leið og ég vaknaði á laugardeginum. Mátti ekki fá mér kaffi með mjólk útí og ekki brauðsneið með osti hvað þá eitthvað meira. Kaffi með hunangi gæti reyndar kannski vanist eitthvað.
Svo kl. 6 í gærkvöldi var settur af stað pípandi niðurgangur með inntöku á PICOPREP. Það virkaði eitthvað og núna er ég bara orðinn nokkuð vanur að sprauta með afturendanum í klósettið. Hef samt mestar áhyggjur af því að ég sé allt of skítugur ennþá þarna inni í mér til að hægt sé að skoða mig almennilega að innan. Núna er svo hafin tveggja tíma fasta fyrir herlegheitin.
En það kemur bráðlega í ljós.
Vona síðan bara að það fari ekki að koma eitthvað vont í ljós í þessu hjá mér... eða samt kannski að ef eitthvað er að þá komi það í ljós.
En ég er nú annars bara góður!
Uppfært
Þetta gekk alveg hreint ljómandi vel. Ekkert vont sást og fékk ekki nein kæruleysislyf og gat því bara keyrt heim strax á eftir. Núna, líklega rúmum hálftíma eftir að ég kom heim er búið að innbyrða AB mjólk tveggja lita með eðalmúsí, brauðseniðar með þykkum osti, kaffi með mjólk og súkkulaðikex. Líklega er ég mataristi - er a.m.k. frekar háður mat!
Það má annars færa til bókar að það að sjá svona inn í sig er með því undarlegra sem ég hef gert og þetta var alveg ótrúlega lítið óþægilegt. Þeir sem eru ekki mikið fyrir dóp ættu að prófa að sleppa kæruleysis sprautunni!
Monday, May 20, 2019
Björgunarleikar á Egilsstöðum
Langt um liðið frá seinasta pósti en það er þannig að stundum gerir maður eitthvað örlítið skemmtilegt eins og t.d. að fara á Björgunarleika Landsbjargar sem voru á Egilsstöðum. Var þar í eðalfínu liði HSSR sem við kölluðum Hvolpasveit enda óttalegir hvolpar. Eitt af verkefnunum var að stökkva ofan í Eyvindarána af gömlu brúnni. Reyndar bara tveir sem stukku í keppninni en við hin mönnuðum okkur upp í að hoppa eftirá. Ekki alveg það auðveldasta sem ég hef gert fyrir sálartetrið að láta sig gossa þarna niður. Videó bæði á þeim ofurhraða sem ég húrraði þarna niður og svo annað sem sýnir þetta aðeins rólegar!
Bæði videóin eru drónavídeó sem Óli Jón Jónsson tók af okkur.
Svo má líka koma fram að okkur gekk alveg sérdeilis vel á Björgunarleikunum og skv. stigagjöf lentum við í 6 sæti af líklega 15 liðum.
Ég var annars ekki alveg einhamur í þessari ferð og var með racerinn með mér og fór tvo sæmilega hjólatúra um 20 km inn með Lagarfljóti. Reyndar óttalegt rok þarna í sólinni.
Bæði videóin eru drónavídeó sem Óli Jón Jónsson tók af okkur.
Svo má líka koma fram að okkur gekk alveg sérdeilis vel á Björgunarleikunum og skv. stigagjöf lentum við í 6 sæti af líklega 15 liðum.
Ég var annars ekki alveg einhamur í þessari ferð og var með racerinn með mér og fór tvo sæmilega hjólatúra um 20 km inn með Lagarfljóti. Reyndar óttalegt rok þarna í sólinni.
Wednesday, March 06, 2019
Klukkubreytingin
VAKNIÐ: Ég vil hafa bjart á meðan ég er vakandi. Þessi breyting á klukku sem er verið að tala um myndi þýða fækkun á árlegum birtustundum í lífi venjulegs fólks eitthvað á bilinu 130 til 190. Ég sagði fækkun - breyting sem margir óska sér myndi þýða meira myrkur!
Ég sem sagt var einn af þeim notuðu samráðsvettvanginn til að benda á galla þess að breyta klukkunni.
Rökin koma t.d. fram hér: Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fengið þannig fleiri birtustundir yfir daginn?
Min skoðun: Ef það á eitthvað að breyta klukkunni þá ætti það að vera til þess að auka þann birtutíma sem við erum vakandi á. Birtutími eftir vinnu þegar fólk almennt frekar er að gera eitthvað til að nýta birtuna ætti alveg að gefa verið með tvöfalt vægi. Persónulega hef ég enga trú á því að unglingar sem far að sofa allt of seint og eru allt of syfjaðir á morgnanna verði eitthvað skárri þó sólin komi upp klukkutímanum fyrr eða seinna miðað við hvenær þeir fara að sofa eða þurfa að vakna.
Copy af Facebook síðunni minni.
Ég sem sagt var einn af þeim notuðu samráðsvettvanginn til að benda á galla þess að breyta klukkunni.
Rökin koma t.d. fram hér: Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fengið þannig fleiri birtustundir yfir daginn?
Min skoðun: Ef það á eitthvað að breyta klukkunni þá ætti það að vera til þess að auka þann birtutíma sem við erum vakandi á. Birtutími eftir vinnu þegar fólk almennt frekar er að gera eitthvað til að nýta birtuna ætti alveg að gefa verið með tvöfalt vægi. Persónulega hef ég enga trú á því að unglingar sem far að sofa allt of seint og eru allt of syfjaðir á morgnanna verði eitthvað skárri þó sólin komi upp klukkutímanum fyrr eða seinna miðað við hvenær þeir fara að sofa eða þurfa að vakna.
Copy af Facebook síðunni minni.
Wednesday, February 20, 2019
Jöklar hopa hratt!
Það var komist í blöðin eftir mikið hop Hagafellsjökuls austari eins og annarra jökla reyndar líka.
mbl.is: Sporðar íslensku jöklanna hopa.
Haraldur Gunnarsson á myndinni með dauðísleifarnar af neðri hluta jökulsins fyrir aftan sig.
mbl.is: Sporðar íslensku jöklanna hopa.
Haraldur Gunnarsson á myndinni með dauðísleifarnar af neðri hluta jökulsins fyrir aftan sig.
Wednesday, January 09, 2019
Ætli ár síðasta túbusjónvarpsins sé runnið upp?
Það var sem sagt verslað sér nýtt sjónvarp með talsvert meira flatarmál en það gamla en hins vegar eitthvað færri rúmmetrar og talsvert færri kíló!
Sunday, October 14, 2018
Sporðamælingar
Í gær var farinn árlegur könnunarleiðangur að Hagafellsjökli eystri, núna með Haraldi Gunnarssyni. Breytingar á jöklinum eru gríðarlegar síðasta áratuginn. Þar sem jökulsporðurinn er slitróttur er erfitt að gefa eina tölu um hop en er líklega á bilinu 55m til 706m eftir því hvaða jaðar á að miða við. Breytingar síðustu 11 árin á meðfylgjandi mynd tala sínu máli! Heildar hop jökulsins á þessum tíma er mælt 1834 metrar. Hafa þarf hér í huga að Hagafellsjöklar eru í eðli sínu framskriðsjöklar sem eiga ekkert ósennilega eftir að fara í tímabundið framskrið aftur. Núverandi staða er að nálgast það sem hann er þekktur með sína hæstu stöðu frá 1972 áður en hann hljóp fram þá.
Fleiri myndir hér.
Og úr ferðinni til að mæla vestari jökulinn, sem var í september.
Fleiri myndir hér.
Og úr ferðinni til að mæla vestari jökulinn, sem var í september.
Wednesday, June 06, 2018
Í sjöunda himni á Hvannadalshnúki
Ég hafði eiginlega ætlað að gera þetta fyrir einhverjum árum að fara með þá Stakavinnufélögum á Hvannadalshnúkinn. En það var ekki farið fyrr en núna og þá Stakafélagarnir orðnir að Deloitte vinnnufélögum. Að auki bættust við nokkrir meira orginal Deloittar.
Þetta varð eiginlega fyrsta ferðin á þennan mesta jökul landsins þar sem ég sá um allt skipulag og bar ábyrgð á ferðinni - þó ég hafi ekki verið launaður gæd þá virkaði þetta nákvæmlega þannig. Ferðin gekk í alla staði ljómandi vel og ekki reyndi sérstaklega á æfingar í júmmi og spekúlasjónir með sprungubjörgun. Eina sem reyndi á var að fylgja þeim seinustu niður. Bakpokinn minn hræðilega þungur og alveg að gara út af við mig hvernig hann lá á öxlunum á mér. En ég annars ágætur í fótunum. Enda ég a.m.k. rúmum 5kg léttari sjálfur en ég var fyrir t.d. ári síðan.
Eins og ég setti þetta upp þá voru markmiðin þrjú og þau náðust öll!
- Komast upp
- Hafa gaman í ferðinni
- Komast niður
Fallegt útsýni þegar við komum uppúr láglendisþokunni
það var lagt af stað í svarta þoku og gott að vera með GPS tækið uppi við þar sem stígurinn er ekki alls staðar mjög greinilegur. Hefði verið klúður að villast með hópinn þarna á fyrstu metrunum. Lögðum af stað rétt upp úr kl. 1 eftir miðnætti aðfararnótt laugardags 2. júní. Hálftíma fyrr hafði Alla leið hópur FÍ farið af stað með Hjalta Björnsson í broddi fylkingar og öðrum hálftíma fyrr eða svo hafði stór hópur Vilborgar Örnu lagt af stað. Alls voru þetta um 100 manns að ganga á fjallið. Eitthvað uppsöfnuð þörf því ekki hafði verið almennilegt veður neinn einasta frídag í maí þetta vorið.
Séð til efri hluta Virkisjökulsleiðarinnar. Sprungur greinilega gera leiðina illfæra.
Hnúkurinn sjálfur fannst mér vera frekar sprunginn en samt gekk þetta stóráfallalaust að klöngrast yfir þær á snjóbrúm sem voru hér og hvar. Línan var höfð þokkalega strekkt!
Hnúkurinn sjálfur frekar sprunginn. Hópur frá Tindar-Travel efst og svo Ferðafélag Íslands, Alla leið hópur undir stjórn Hjalta Björnssonar
Niðurleiðin gekk í sjálfu sér ágætlega en það var frekar lítil fjallgöngureynsla í minni línu og einvherjir urðu rosalega þreyttir á leiðinni niður. Kannski átti ég einhverja sök á því þar sem mjög hratt var farið í línunni neðarlega í löngu snjóbrekkunni. Gerði kannski hálfpartinn út af við þá sem varð þreyttust. En niður komumst við skref fyrir skref í lokin sem sum hver voru mjög stutt. Heildartími varð um 15.5 klst. hjá mér.
Mér telst annars til að þetta hafi verið ferð nr. 7 þarna upp.
- Með Fí 1985 um 17 júní, Virkisjökulsleið.
- Með vinnufélögum frá Ráðgarði þegar Einar Rúnar var okkar leiðsögumaður og við fórum Hnappaleiðina.
- Með vinnufélögum frá Skýrr og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn að leiðsegja. Eina ferðin sem ég hef farið með því kompaníi og hef aldrei farið með jafn ófaglegum leiðsögumönnum sem t.d. skildu einn farþegan eftir sem gafst upp undir Dyrhamrinum á meðan aðrir kláruðu. Sá sem beið þurfti að dúsa þar í svona 6 klst!
- Aftur með Skýrr og núna undir leiðsögn Árna Þórs úr HSSR. Fyrsta skiptið sem ég fór Sandfellsleiðina.
- Enn aftur með Skýrr. Sandfellsleið og ég gekk upp á fjallaskíðum. Það var erfitt en ljúft að renna sér niður. Aðalleiðsögumaður var Raggi Ant frá Skýrr.
- Sem gæd með FÍ vorið 2017. Fyrsta skipti sem ég var að gæda þannig ferð á launum.
- Núna vorið 2018 og ég sem aðalleiðsögumaður fyrir starfsmenn Deloitte.
Subscribe to:
Posts (Atom)









