Tuesday, June 24, 2003

Jónsmessunæturdraumur
Þá er jónsmessunóttin í algleymingi. Ég heyri útundan mér malandi beljur og álfar dansa í hverjum hól.

Fékk mér áðan Jónsmessuhjólatúr. Kom við í Laugardalnum þar sem gerð er alvöru tilraun til að koma á Jónsmessuhátíð. Mér finnst að Íslendingar ættu að gera miklu meira úr Jónsmessunni eða eiginlega frekar sumarsólstöðunum sem voru reyndar um helgina. Nánartiltekið rétt uppúr klukkan sjö á laugardagsvkvöldið. Ég veit nú eiginlega ekki hvernig þessi Jónsmessuhátíð þeirra húsdýragarðsmanna í Laugardalnum var heppnuð. Það var mikið í lagt og gekk á með álfum og huldufólki og alls kyns furðufyrirbærum. Það var varðeldur og söngu en einhvern veginn finnst mér að það sé meiri stemning á varðeldinum í Básum heldur en þarna. Þetta var annars ágætt.

Uppi í Elliðaárdal hitti ég Gunnsa sem virðist elta mig á röndum orðið. Hitti hann annan hvern dag. Ekki var nú döggin í Elliðaárdalnum ýkja mikil. Reyndar svo lítil að óskarætingar gætu verið í stórhættu. Skiptir kannski ekki svo miklu máli fyrir mig því ég ruglaðist alveg í óskinni minni.

Monday, June 23, 2003

Hefði kannski átt að vera þessi???
Results... onnur mynd
Thu ert Malcolm in the middle!
Lif thitt er eins og kjarnorkusprengja. Fjolskyldan
thin er meira en litid brenglud en thu ert
avallt skemmtileg/ur og hress og lifgar upp a
tilveruna.


hvada skjareinn thattur ert thu?
brought to you by Quizilla
ASNALEGT!!!!

Results... mynd
Thu ert Yes Dear! Lif thitt er oahugavert og
leidinlegt, thu segir omurlega brandara og
enginn hefur longun til ad vera nalaegt
ther...thess vegna attu enga vini.


hvada skjareinn thattur ert thu?
brought to you by Quizilla

Sunday, June 22, 2003

Línuskautakapphlaupiðmikla
Nú var efnt línuskautakapphlaupsins hins mesta. Keppnin hófst við köfunarskúrinn í Nauthólsvík þar sem forkeppnin var fólgin í því að vera á undan að komast í línuskautana og allan viðeigandi hlífðarbúnað. Ég sigraði í forkeppninni en ekki með neinum yfirburðum og hefði líklega verið dæmdur úr leik þar sem ég svindlaði á þessum hefðbundna hlífðarbúnaði og var ekki með neinarhlífar á olnbogunum. Held meira að segja að ég hafi ekki náð að vera þessum tveimur hlífum sem ég svindlaði með á undan þannig að það var líklega orðið 1-0 frir Röggu áður en alvöru keppnin hófst. / alltaf að bulla svoltið í blogginu sínu / þurfti reyndar ekkert að bæta því við / enda vita það allir!!!!!!!!!!!!

Jæja. Hlaupið hófst óskaplega og fór Ragga betur af stað og hélt forystunnu lengi vel eða að minnsta kosti að einhverri beygju þarna á leiðinni. En þetta var ágætt og alveg stórfínt. Engin skakkaföll fyrir utan smápústra og eina dauða flugu, eða að minnsta kosti dáltið vankaða eftir árekstur við Röggu. Boltinn hitti hvorugt okkar, þrátt fyrir góða tilburði. Jæja, úrslitin eru svohljóðandi:



-.-.- Ragga Raggi Vegalengd
Köfunarskúrinn við Nauthól 0 0 0
Vesturendi Ægissíði 14 12 3,7
Köfunarskúrinn við Nauthól 27 23 7,4
Bekkurinn við Kringlumýrarbraut 33 27 8,5 ?
Köfunarskúrinn við Nauthól 38:30 31.21 9,6 ?

Trjáplöntun
Er núna búinn að planta trjám upp að öxlum. Á mér sko en ekki trjánum. Fór í "sveitina mína" austur í Mýrdal þar sem landnemar á Fellsmörk voru með sameiginlegan gróðursetningardag. Varð reyndar dálítið seinn af stað af því að ég var alltaf að bíða eftir að litla systir mín myndi sko hringja í mig og segjast vera að fara að verða tilbúin. Neinei, hún var þá bara alveg tilbúin og skildi ekkert í því af hverju ég drattaðist ekki til hennar.

Plöntuðum síðan Landgræðsluskógatrjásum upp um allar hlíðar. Var reyndar verst að ég komst að því að grenitrén sem við gróðursettum árið áður á sama svæði voru frekar illa farin en birkitrjén voru hins vegar alveg stórfín.

Uppgötvaði síðan nýtt vandamál sem ég átti ekki von á að myndi há trjárækt í Mýrdal. Það hafa verið svo hroðalegir þurrkar þarna í vor og sumar að trén eru sum hver hálfþornuð upp og farin að drúpa höfði. Eða ég vona að minnsta kosti að vönkuðuð trén séu með vantsskort en ekki komin með einhvern dularfullann sjúkdóm.

Á eftir gróðursetningunni var síða efnt til herjarinnar grillveislu hjá þeim Hjalta og Júlíu. Svakalega flott hjá þeim!!!

Eftir að hafa tekið sólstöðumyndir á leiðinni heim þá rakst ég á nýju nágrannakonuna mína sem er greinilega ekki jafn hroðalega seinþreytt til vandræða og ég því hún var að banka uppá hjá honum ógeðisnágranna mínum (þessum partýóða með hundinn) og til að kvarta. Eitthvað sem ég hefði átt að gera kannski frekar en að öðlast í staðinn hatur á manninum og öllu því sem honum tilheyrir. Það er bara einvhern veginn ekki í mér að vera að kvarta í ömurlegum nágrönnum eða ömurlegu fólki, heldur reyni ég að leiða það einhvern veginn hjá mér.

Friday, June 20, 2003

Hann fór í veiðiferð í gær, hann Raggi litli
og skildi húsið eftir autt og ykkur þar
þið eruð glöð og .....

Já, hmmmmmmm
Ég fór sko í meiðiferð í gær á Eldingu og meiddi þrjá fiska eða kannski bara tvo. Drap reyndar þann fyrsta með köldu blóði og át hann. Nei reyndar ekki ég át hann ekki. Sleppti þeim næsta eftir að hafa meitt hann dálítið með oddkvössum önglinum. Veiddi svo annann en hef grun um að það hafi verið sá sami aftur. Vildi greinlega skoða betur hvað væri að gerast þarna um borð.

En að öllu gamninu slepptu þá fór ég sem sagt á sjóstöng í gærkveldi með vinnufélögunum. Svona að minnsta kosti úrvalinu af þeim. Allir veiddu held ég eitthvað (ja nema Krummi sem gaf eitthvað lítið fyrir þennan veiðiskap), drukku eitthvað og átu eitthvað. Ég veiddi sem fyrr segir þrjá gula þorska, drakk tvo góða bjóra, át einn frábæran hamborgara en ekkert súkkulaði. Enginn varð sjóveikur og enginn varð sér neitt mikið til skammar.

Var líka svakafitt og kom á hjólinu mínu niður á höfn. Gekk síðan í vinnuna í morgun. Það kom reyndar ekkert af góðu heldur þeim ósköpum helstum að bíldrússlan mín vildi ekki í gang í gær þegar halda átti heim á leið úr vinnunni.

Á morgun skal síðan plantað trjám........... Er stundum að furða mig á hvers konar lífi ég eiginlega lifi!

Thursday, June 19, 2003

Stórfrétt frá Egilsstöðum á mbl.is:

Árekstur á Egilsstöðum

Óhapp varð á plani bensínstöðvar Esso á Egilsstöðum í morgun, þegar rúta frá SBA-Norðurleið og Volvo fólksbíll lentu í samstuði með þeim afleiðingum að fólksbíllinn skemmdist töluvert, en minna sér á rútunni. Ekki urðu slys á fólki við áreksturinn.

Þetta er meirasegja svo merkilegt
að það var ekki hægt að birta alla myndina með ósköpunum!
Sveitamenn hvað?!