Friday, June 06, 2003

Þetta er undarlegt, ég vissi ekki að bloggið mitt væri orðið svona frægt!
Haldiði að það einhver serbókrótati hafi ekki tekið bloggið mitt og gert að sínu eigin. Þýtt það eða skrifað eitthvað á serbókróatísku. Tekið myndirnar alla grafík og allt. Sjá HÉR

Thursday, June 05, 2003

Undarleg þessi SMS heilræði sem maður fær stundum

Stundaðu aldrei kynlíf úti í garði. Ástin er blind en það er nágranni þinn ekki


||||||||
(.)(.)
----oOO--OOo-----

-8-


Mikill er friðurinn á vorum tímum
Óspurðar fréttir sf. hafa haft mikið fyrir því að grafa upp texta bréfs W til DO&co. Fer hann hér að neðan:

"Dear founding member of the Coalition of the Willing™

Due to the world now being a safer place, thanks to your support of Operation Invisible WMD, we have decided to realign the defenses of your nation.

As you may know, we have, in the past, had to worry about nucular weapons from those pesky commies in the State Department and Russia.

Both have now been neutered.

This fact has led us to believe that your defenses can be served by the National Guard unit of Montana (State Motto: At least our cows are sane).

To facilitate this we have set up a toll free number for you to call in case of invasion.

The number is 1 800 4DP SHIT, which is manned during normal business hours, Central time.

Thank you for your support.
Dubya"



Þökk sé þér Stebbi fyrir þessar inside information!

Tuesday, June 03, 2003

Frábært, er búinn að finna nýja leið til að fá heví traffík inn á síðuna mína
Eftir að síðan var flutt frá Blogspot þá koma uppfærslur á henni ekki fram á rss molum. Til að auka traffíkina þá setti ég örlita pornóveiðistöng á síðuna. Breytti bara titli síðunnar hjá blogger.com yfir í "The naked lifestyle". Og viti menn, rétt áðan voru einhverir 9 úttlendingar að reyna að botna í síðunni minni! Verst að þeir skilja líklega ekkert í henni en núna fæ ég í öllu falli svaka traffík!
Svo er ég farinn að hlakka til helgarinnar
Fyrsta fjallaferðarútilega sumarsins framundan. Ætla að arka með fríðu föruneyti Skýrrara yfir Fimmvörðuháls, aðfararnótt laugardagsins næsta og vera í Mörkinni a.m.k. fram á sunnudag. Mánudag ef glöð verða geð guma!
Aumingjans bóksölumenn og aðrir í símasölu
Er stundum að velta fyrir mér að líklegast ætti ég að fara að setja svona rautt merki við mig í símaskránni. Ekki til að vernda mig heldur til að nýta betur tíma þeirra sem eru í þessari símasölu. Úr því að þetta dynur á manni alltaf af og til þá reikna ég einhvern veginn með því að það kaupi einhver eitthvað í gegnum svona sölu - ég geri það bara ekki sjálfur.

Já góðan daginn er eiraggi við?

Ha, já þetta er hann / svo sem ekki von á mörgum öðrum að svara símanum mínum!

Er ég nokkuð mikið að truffla?

Ha, nei þetta er allt í lagi / allaf að reyna að vera ekki mjög ókurteis en kannski hefði ég bara átt að segjast vera ferlega upptekinn en þá hefði þessi hinum megin á línunni örugglega bara viljað fá að hringja aftur!

Ég vildi nefnilega segja þér frá tilboðum sem eru hjá Eddu miðlun

Hmmmm jáááá / er svona ekkert svakalega glaður

Já við erum með orðabókina þessa íslensku og hún er á bara 16000 krónur .............

Nei ætla ekki að kaupa hana / ég kaupi mér nefnilega yfirleitt bækur af því að mig langar í þær en ekki af því að einhvern langar til að selja mér þær.
Síðan eru líka orðabækur í tveimur bindum eitthvað það kjánalegasta sem ég get hugsað mér. Ef orðabók er orðin svo stór að hún kemst ekki í eitt bindi þá hlýtur hún að fara betur í þremur bindum en einu

Já svo er ég líka með Perlur í náttúru Íslanands sem eru á sérstökum kostakjö.............

NEI ég hef ekki áhuga / enda lanar mig ekkert í einhverjar myndabækur á 10-20 þúsund kall stykkið sem eru síðan svo asnalega stórar að þær passa ekki einu sinni í bókahillu. Eru líka til hjá foreldrum mínum ef mig langar til að kíkja í þær. Mamma yrði nú bara glöð ef ég gerði mér ferð til þeirra þó það væri bara tl að skoða einhverjar bókur


Sem betur fer áttaði þessi sölukona sig á því að ég væri ekki auðunnið fórnarlamb í bóksöluheiminum og þakkaði því bara pent fyrir.

Annars held ég að ég sé á lista hjá flestum sölumönnum yfir fólk sem þýðir almennt ekkert að reyna að selja nokkurn skapaðan hlut enda gerist þetta sem betur fer fyrir báða aðila ekkert svakalega oft. En samt nógu oft til að ég sé að hugsa um að fara að setja svona ónáðið ekki merki í símaskrána við nafnið mitt.

Sunday, June 01, 2003

Undarlegur sólarhringur
Það eru nú ekki allir sólarhringir eins. Og þeir sem eru með hringmyrkvum geta orðið enn meira öðru vísi er ég búinn að komast að.

Var eiginlega búinn að gefa þetta sólmyrkvaæfintýri upp á bátinn þegar við ákváðum að fara líklega upp á Holtavörðuheiði. Þá værum við komin nær norðurlandi og þar átti frekar að vera minni skýjahula. Einnig værum við þar mátulega hátt uppi til að sjá sólarupprásina.

Reyndar fékk ég símhringingu um 11 leytið um kvöldið þar sem mér varn bent á að það gæti verið sniðugt að skoða myrkvann ofan af Snæfellsjökli. Þar væri maður kominn uppúr skýjunum. Eftir smá vangaveltur sáum við að það væri allt of stuttur fyrirvari að fara að æða þangað upp með 1-2 klst fyrirvara. Þekkjum ekkert leiðina þangað upp og vissum ekki hvað væri hægtað keyra langtu upp á Jökulhálsinn. Varð því Holtavörðuheiðin fyrir valinu.

Fórum við þrjú saman úr bænum, ég Ragga og Gunni og höfðum á orði að núna hefði líklega nýtt bjartsýnismet verið sett. Að æða af stað um miðja nótt í ausandi rigningu til að fara að skoða sólmyrkva!

Það hætti nú að rigna fljótlega og þegar við nálguðumst Borgarnes sáum við smá roða einhvers staðar í skýjunum. Bjartsýni fór því að gera vart við sig en það var skammvinnt þar sem uppi á Holtavörðuheiði keyrðum við inní svarta þoku. Það er sko frekar ólíklegt að sjá mikið til sólmyrkva þegar skyggnið er ekki nema svona 20 metrar þegar best lætur. Við keyrum síðan niður úr þokunni einhvers staðar ofarlega í Hrútafirði en þar var náttúrulega alskýjað. Þar sem flutningar stóðu fyrir dyrum á laugardeginum þá var ákveðið að gefa þessu engan séns heldur fara bara beina leið til baka. Kannski voru það meiriháttar mistök því RAX á Mogganum náði þessari frábæru mynd hér að neðan við Hraun á Skaga.


En við brunuðum sem sagt í bæinn án þess að hafa séð nokkurn skapaðan hlut.

Annars má lesa um þessa hetjuleigu tilraun og hrakfararsögu hér

Sváfum smá og svo var gengið í það verkefni að bera stóra bróður út í Sólheimunum og inn í Hafnarfjörðinn. Tók það lungann í deginum.