28-29 september 2023
Tjaldstaður við Línuveg eftir fyrri jöklamælidag.
Svo einhverju sé haldið til haga þá var þetta edilonsfín ferð til að mæla Hagafellsjökla. Var farið af stað eftir ISO úttekt og einn á ferð fyrst og mældi þá vestari jökulinn. Tjaldað við Línuveginn og raunar tekinn lokafundur úttektar snemma daginn eftir.Hitt svo Gunna við skála FÍ við Einifell og farið saman að mæla eystri jökulinn.
Séð yfir Hagafellsjökul Austari - Borgir í jöklinum sem eru að mynda jökulsker.
----------------------Skráð inn löngu seinna... 27-10-2024