jæja...
Þá fer maður að drattast af stað í ferðalag... einsamallur.
Veit ekki hvernig ég fíla það en er í það minnsta kosti með yfirdrifið nóg drasl með mér þannig að mér ætti ekki að leiðast hvað svo sem gerist í þessu ferðalagi!
En það er samt einhvern veginn held ég skemmtilegra að hafa einhvern með sér...
Gætir reynt að bjarga því sem bjargað verður með puttalingum...
ReplyDeleteÞað er ekki nokkur leið nema þá með raunverulegum puttalingum, þ.e. svona fólki eins og er í putalandi.
ReplyDeleteVentó yfirfullur af drasli, ramfagnskælibox á gólfinu í framsætinu að nota rafmagnið úr sígarettukveikjaranum, myndavélin í sætinu, kortakassar og ferðabókakassar í aftursætinu og eitthvað dót. Einn bívak, tvö tjöld, einangrunardýna, loftdýna og vindsæng í skottinu. Líka tveir prímusar, panna, spaði og efni til að baka skonsur, búa til pressukönnukaffi og mokkakönnuexpressókaffi, tvær gerðir af súkklulaði ofan á brauð og skonsur og svo mætti lengi áfram telja.
Svo trjónir hjól á toppnum, sem næstum því fauk af á leiðinni upp á Öxnadalsheiðina, Skagafjörðurinn ætlaði greinilega að halda fast í mig.
Samt þá sýnist mér að eitt og annað hafi gleymst og það þurfi í smá verslunarleiðangur á Akureyrinni!